Category: Fréttir

Markmiðið að bæta námsárangur

Á fundi fræðsluráðs í morgun var samþykkt að efna til samstarfs við leik-og grunnskólana í bænum um nýtt þróunarverkefni sem beinist að því að bæta námsárangur í öllum skólum bæjarins. Þróunarverkefnið er hugsað til tveggja ára og beinist að því að efla læsi, virkni og námsáhuga á  öllum  námssviðum og  námsgreinum,  með sérstakri áherslu á […]

Málþing um læsi 25. febrúar

Málþing um læsi fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla í Hafnarfirði verður haldið á skipulagsdegi beggja skólastiganna í Hafnarfirði þann  25. febrúar nk. á Hilton Hótel Nordica. Málþingið byggir á tveimur aðalfyrirlestrum og fjórum málstofum þar sem flutt verða fjögur erindi samtímis. DAGSKRÁ  Kl. 8.30    Setning                    Ávarp – Rósa Guðbjartsdóttir, formaður fræðsluráðs. Kl. 8.45    Aðalfyrirlestur […]

Karólína könguló á bókasafninu

Sögustund á Bókasafni Hafnarfjarðar laugardaginn 21.febrúar kl. 13.00 Katrín Ósk Jóhannsdóttir, höfundur bókanna um Karólínu könguló, les upp úr bókum sínum og leysir þrautir með börnunum. Allir velkomnir !

Öskudagurinn

Öll börn upplifa öskudagsskemmtun í sínu nærumhverfi í Hafnarfirði í ár. Í öllum grunnskólum í Hafnarfirði er skertur dagur og skólastarfið brotið upp.  Hver skóli fyrir sig útfærir sína dagskrá til kl. 11:00 um morguninn. Frístundaheimilin eru með skemmtidagskrá fyrir þau börn sem þar eru. Félagsmiðstöðvarnar verða flestar með starf fyrir miðdeild seinnipartinn þennan dag […]

Vegna frétta um könnun Hafnarfjarðarbæjar á símtölum

Í tilefni af fréttum um könnun Hafnarfjarðarbæjar á símtölum starfsmanna sveitarfélagsins vill sveitarfélagið koma eftirfarandi atriðum á framfæri: Því er alfarið hafnað að við þessa rannsókn hafi verið kannað við hverja kjörnir fulltrúar eða aðrir starfsmenn sveitarfélagsins töluðu í síma eins og fullyrt er í fjölmiðlum í dag. Við rannsókn á gögnum hefur sveitarfélagið gætt […]

100 daga hátíð í Öldutúnsskóla

Mánudaginn 26. janúar héldum við í 1. bekk upp á það að nemendur hafa verið í skólanum í hundrað daga. Við bjuggum til kórónur og unnum með töluna 100. Síðan röðuðu nemendur 100 smáhlutum sem þau komu með að heiman á blað. Því næst var haldið af stað syngjandi um skólann, um alla króka og […]

Andvirði sölu hlutabréfa notað til að borga niður skuldir

 “ Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að nota andvirði sölu hlutabréfa í HS Veitum til að borga niður skuldir bæjarins og er það í takt við þá áherslu bæjarstjórnarinnar að efla fjárhagsstöðu bæjarins“ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu hluthafafundar HS Veitna um […]

Bjartir dagar

Bjartir dagar verða haldnir 23.-25. apríl og er Sumardagurinn fyrsti hluti af dagskrá. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt með söng, leik og gleði þá hafðu samband við Skrifstofu menningar- og ferðamála eða sendu póst á marin@hafnarfjordur.is Ertu ekki örugglega að fylgjast með Björtum dögum á facebook.

Bæjarstjórnarfundur 18.febrúar

Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn .18. febrúar 14.00. Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.

Kirkjuvellir 12

Hafnarfjarðarbær auglýsir fjölbýlishúsalóðina að Kirkjuvöllum 12 lausa til úthlutunar. Lóðin er 4511,0 m2 að stærð og nýtingarhlutfallið allt að 0,6.  Á lóðinni er gert ráð fyrir allt að 30 íbúðum.  Stærðardreifing íbúða skal vera nokkuð jöfn. Verð pr. íbúð kr. 3.470.568 m.v. heildarstærð húss 1200 m2 ef mannvirki er stærra þá þarf að greiða fyrir […]