Flokkur: Fréttir

Býttað og selt í Firði

Það voru um í kringum tíu krakkar sem settu sig í gír bókasölumannsins og – konunnar um helgina í Verslunarmiðstöðinni Firði. Börnin komu með bækur til sölu og býttis sem þau hafa sjálf lesið oftar en einu sinni og vildu með þessu endurnýja lager sinn eða eignast smá pening m.a. til að safna fyrir nýjum […]

Bækur og bíó í Setbergsskóla

Í tilefni af menningarhátíðinni, Bóka- og bíóhátíð barnanna, unnu nemendur í 2. ARP í Setbergsskóla verkefni út frá fyrstu bók Hafnfirðingsins Guðrúnar Helgadóttur. Fyrsta bók hennar er um hina uppátækjasömu tvíburabræður Jón Odd og Jón Bjarna sem kom út árið 1974 og urðu bækurnar þrjár um þá bræður. Samspil bókmennta og kvikmynda – Jón Oddur […]

GoRed í Hafnarfirði

GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma. Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í átakinu með því að vekja athygli á verkefninu og hvetja rúmlega 2000 starfsmenn bæjarins til að klæðast rauðu föstudaginn 19. febrúar. Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að […]

Skæri og blað – listasmiðja

Í tilefni af  Bóka- og bíóhátíð Hafnarfjarðar  verður haldin listasmiðjan: Skæri – blað – listaverk, í Hafnarborg sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.  Sunnudaginn 21. febrúar kl. 14 býður Hafnarborg fjölskyldum að koma og skapa eitthvað fallegt saman í formi listaverks eða bókverks.  Efniviðurinn verður bækur, pappír og texti og sem hægt er að klippa, líma eða brjóta saman í origami. […]

Bókabýttimarkaður barnanna

Lumar barnið þitt á „gömlum“ og mikið lesnum bókum sem það væri alveg til í að skipta út fyrir „nýjar“ bækur?  Hvílir stafli af barnabókum uppi á lofti eða inni í geymslu sem gæti öðlast nýtt líf í höndum annarra? Vettvangur fyrir börnin Bókabýttimarkaður barnanna verður haldinn í Verslunarmiðstöðinni Firði á laugardaginn frá kl. 13-15.  Tilgangur […]

Nafn á nýjan leikskóla

Hafnarfjarðarbær leitar í hugmyndabrunn íbúa og annarra áhugasamra að nafni fyrir nýjan leikskóla að Bjarkavöllum í Hafnarfirði.  Leikskólinn við Bjarkavelli í Hafnarfirði verður fjögurra deilda skóli fyrir um 100 börn. Áætlað er að hafa um 25 börn á deild á aldrinum 2ja-5 ára. Hönnun skólans hófst í ágúst 2014 og lauk þeirri vinnu í janúar 2015. Leikskólinn […]

Verkefnisstjóri óskast

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkefnisstjóra vegna hönnunar og byggingar hjúkrunarheimilis að Sólvangi. Óskað er eftir einstaklingi/fyrirtæki sem hefur reynslu og þekkingu af sambærilegu verkefni. Verkefnisstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist fyrir þetta verkefni. Hönnun nýs hjúkrunarheimilis að Sólvangi er að hefjast og  er ráðgert að heimilið hefji starfsemi sína í apríl 2018. Eftir er […]

Andlit lesturs og læsis

Fanndís Friðriksdóttir og Friðrik Dór Jónsson voru í dag, á opnunarhátíð Bóka- og bíóhátíðar Hafnarfjarðar, útnefnd lestrarsendiherrar Hafnarfjarðar 2016.  Er þetta í fyrsta sinn sem þessi titill er veittur í Hafnarfirði og á landsvísu svo vitað sé. Titilinn koma þau til með að bera út þetta ár og vera andlit lesturs og læsis fyrir hafnfirsk […]

Iðar allt af lífi og kátínu

Skíma, málgagn Samtaka móðurmálskennara, fór nýlega í heimsókn á leikskólann Tjarnarás í Hafnarfirði og fékk kynningu á starfseminni og þeim áhugaverðu og uppbyggjandi þróunarverkefnum sem í gangi eru innan veggja  leikskólans.   Viðtalið í leikskólunum: Leikskólinn Tjarnarás Gaman er að koma inn á leikskólann Tjarnarás því að þar iðar allt af lífi og kátínu. Börnin hafa […]

SMS örsögur og ratleikur

Bókasafn  Hafnarfjarðar tekur virkan þátt í Bóka- og bíóhátíð barnanna og er nóg um að vera! Alla vikuna geta þeir sem fá lánaðar barnabækur tekið þátt í útlánaleik þar sem dregin verða út bókaverðlaun. Gestir og gangandi eru hvattir til að taka þátt í að semja eina stóra sögu saman á umbúðapappír á barnadeildinni auk […]