Skýrsla um framtíðarnotkun Víðistaðatúns Posted nóvember 21, 2015 by avista Nýlega lauk starfshópur um framtíðarnotkun Víðistaðatúns störfum og skilaði af sér skýrslu um þau fjölmörgu tækifæri sem búa í Víðistaðatúnssvæðinu. Í skýrslunni er framkvæmdaáætlun til þriggja ára. Meðal helstu tillagna má nefna: koma upp fleiri leiktækjum setja upp grillaðstöðu fyrir hópa og fjölga þar bekkjum og borðum afmarka svæði fyrir golf/mínígolf sem stýrt verður frá […]
Endurskinsmerki í skammdeginu Posted nóvember 20, 2015 by avista Nú er mesta skammdegið og minnum við á að nota endurskinsmerki jafnt börn sem fullorðnir. Í myrkrinu sjáumst við illa og er því notkun endurskinsmerkja bráðnauðsynleg. Til þess að þau séu sem mest sýnileg er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum. Fremst á ermum Hangandi meðfram hliðum Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum
Kynheilbrigði eldri borgara Posted nóvember 17, 2015 by avista Félag eldri borgara í Hafnarfirði bauð nýverið upp á fyrirlestur sem ber heitið „Kynheilbrigði eldriborgara“ í opnu húsi í Hraunseli. Fyrirlesari var Sigga Dögg kynfræðingur. Mættir voru margir hressir eldri borgara til að fá fræðslu um ýmis mál er varðar kynheilbrigði og sambönd fólks. Flutningur Siggu Daggar á efninu var frábær og voru gestir mjög […]
Íbúðir óskast til leigu Posted nóvember 16, 2015 by avista Hafnarfjarðarbær óskar eftir að taka á leigu nokkrar íbúðir í sveitarfélaginu. Nánari upplýsingar gefur Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 eða á netfangið hafnarfjordur@hafnarfjordur.is. Óskað er eftir að upplýsingar um íbúðir berist fyrir 1. desember. Fjölskylduþjónusta Hafnarfjarðarbæjar.
Dagur íslenskrar tungu Posted nóvember 16, 2015 by avista Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert og fellur á mánudag þetta árið. Þá hefst formlega Stóra upplestrarkeppnin í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún er haldin í 7. bekkjum grunnskólanna. Í vetur heldur hún upp á 20 ára afmæli í Hafnarfirði og þar sem hátíðin hófst í Hafnarfirði verður hún aðeins 20 ára í […]
Jól í skókassa Posted nóvember 16, 2015 by avista Í Öldutúnsskóla var ákveðið að taka þátt í verkefni JÓL Í SKÓKASSA í ár. Undirbúningur hófst í vikunni fyrir vinavikuna. Þá fóru að berast skókassar og varningur í þá frá heimilum nemenda og starfsfólks. Í vinavikunni var raðað í kassana og þeim pakkað inn. Til að nemendur myndu tengja enn betur við verkefnið var þeim […]
Fjölgreindarleikar í Áslandsskóla Posted nóvember 12, 2015 by avista Fjölgreindarleikar eru í Áslandsskóla í dag og þeir hófust í gær. Í þeim felst að nemendur glíma við margs konar verkefni og ólík þar sem hefðbundin stundaskrá er sett til hliðar á meðan. Á fjölgreindarleikunum í Áslandsskóla mátti sjá margs konar verkefni, s.s. að púsla, að kasta bréfaskutlum, leysa stafarugl, dansa, hitta í körfu og […]
Skólaþing nemenda í Áslandsskóla Posted nóvember 12, 2015 by avista Skólaþing nemenda í Áslandsskóla var haldið þriðjudaginn 10. nóvember. Þann dag ræddu nemendur skólans margvísleg sjónarmið sín og skoðanir um skólastarfið í þeim. Markmiðið með skólaþinginu er að gefa öllum vettvang eða tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri og fá stuðning fyrir góðum tillögum sem efla skólastarfið. Nemendur á yngsta stigi ræddu frístundaheimili, […]
Viljayfirlýsingu um ljósleiðaratengingu Posted nóvember 11, 2015 by avista Bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar og stjórnendur Gagnaveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um ljósleiðaratengingu allra heimila í bænum. Nú þegar nær Ljósleiðarinn til um 2.100 heimila í Hafnarfirði. Í kjölfar viljayfirlýsingarinnar munu 500 heimili til viðbótar verða tengd fyrir árslok og alls verða um tíu þúsund heimili í Hafnarfirði tengd ljósleiðaranum fyrir árslok 2018. Það eru öll […]
Bæjarstjórnarfundur 11. nóvember Posted nóvember 9, 2015 by avista Boðað hefur verið til fundar í Bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 11.nóvember 2015 kl 16:00. Dagskrá bæjarstjórnarfundar 11. nóvember 2015 Bæjarbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum hér á vefnum.