Gatnagerðargjald af bílakjöllurum fellt niður

Fréttir

Hafnarfjarðarbær stígur enn eitt skrefið til að hvetja til uppbyggingar í bænum. Bæjarráð samþykkti í gærmorgun að fella gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna niður.

 

Bílakjallararnir án gatnagerðargjalda

Bæjarráð hefur samþykkt að fella gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna niður að fullu. Gjaldið var 25% af hefðbundnu gatnagerðargjaldi þegar byggðir eru bílakjallarar eða sameiginlegar bifreiðageymslur fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar.

Meira rými fyrir byggðina

„Markmið breytinganna er að skapa mannvænna og grænna umhverfi með auknu rými fyrir græn svæði og byggð, á sama tíma og stuðlað verði að því að bílastæði færist í auknum mæli neðanjarðar og yfirborð landsins nýtist frekar fyrir fólk og náttúru,“ segir Karólína Helga Símonardóttir, formaður skipulags- og byggingarráðs.

„Með þessum aðgerðum vonumst við til þess að hvetja verktaka til að byggja bílakjallara og skapa þannig meira aðlagandi umhverfi fyrir okkur öll,“ segir hún og að breytingin kalli á betri nýtingu lóða og umhverfisins.

Ákvörðunin kemur til viðbótar við breytingar sem Hafnarfjarðarbær samþykkti í sumar til að létta greiðslubyrði á fyrstu stigum byggingarframkvæmda.

Með þeim breytingum verður á næstu tveimur árum heimilt að dreifa greiðslu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda á allt að fjóra gjalddaga yfir allt að 24 mánaða tímabil. Greiðslurnar voru áður almennt inntar af hendi allar í einu en nú má dreifa eða  tengja þær við framvindu framkvæmda eða tiltekna verkáfanga.

Betri forsendur frá upphafi

Heimildin getur tekið til sérbýla, fjölbýlishúsa, atvinnuhúsnæðis og stærri uppbyggingarverkefna. Markmiðið er að draga úr greiðslubyrði við upphaf framkvæmda og skapa betri forsendur fyrir því að verkefni komist fyrr af stað.

„Þetta eru leiðir hér hjá okkur í Hafnarfjarðarbæ til að styðja við öfluga, hagkvæma og vandaða uppbyggingu í bænum,“ segir hún.

Nánar um greiðsludreifingu gatnagerðar- og byggingarréttargjalda

 

Ábendingagátt