Gengið inn í heim bókanna
Lokaspretturinn við undirbúning opnunar nýs Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði er hafinn. Starfsfólk vinnur af fullum krafti að því að koma öllu fyrir og gera húsið tilbúið fyrir opnun síðar í júlí, þegar gestir fá loksins að stíga inn í glæsilegt nýtt heimili bókasafnsins. Eitt af því sem tekur á móti gestum verður nýtt og einstakt útilistaverk á tröppunum upp að aðalinnganginum.
Nýtt listaverk prýðir tröppurnar í átt að inngangi í nýtt bókasafn
Lokaspretturinn við undirbúning opnunar nýs Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði er hafinn. Starfsfólk vinnur af fullum krafti að því að koma öllu fyrir og gera húsnæðið tilbúið fyrir opnun síðar í júlí, þegar gestir fá loksins að stíga inn í glæsilegt nýtt heimili bókasafnsins.
Verkið er bæði sjónrænt og táknrænt
Eitt af því sem tekur á móti gestum verður nýtt og einstakt útilistaverk á tröppunum upp að aðalinnganginum. Þar vinnur listamaðurinn Juan Artic að litríku verki þar sem hver trappa verður að bók og saman mynda þær bókastafla sem leiðir gesti inn í heim bókmenntanna. Verkið er bæði sjónrænt og táknrænt. Á leiðinni inn á bókasafnið ganga gestir bókstaflega upp í heim bókanna þar sem valdir bókatitlar prýða tröppurnar og minna á kraft sagna, lesturs og sköpunar.
Hugmyndir frá bæjarbúum
Listaverkið varð til í samvinnu við bæjarbúa. Í vor efndi Bókasafn Hafnarfjarðar til hugmyndasamkeppni þar sem íbúar voru hvattir til að deila titlum á sínum uppáhalds bókum. Viðbrögðin voru frábær og fjölmargar tillögur bárust. Eitt af því sem stóð upp úr var hversu margir vildu sjá verk hafnfirskra höfunda fá veglegan sess í listaverkinu. Aðrir nefndu sígild íslensk verk, heimsþekktar skáldsögur og ástsælar barnabækur sem hafa fylgt kynslóðum lesenda. Ekki var hægt að koma öllum tillögunum fyrir, en lokaúrvalið endurspeglar vel þann fjölbreytta bókaheim sem bókasafnið stendur fyrir og þann mikla áhuga sem bæjarbúar sýndu verkefninu.
List sem gleður augað og samfélagið
Listamaðurinn Juan Artic hefur áður sett svip sinn á Hafnarfjörð með litríkum útilistaverkum sem hafa vakið verðskuldaða athygli. Með þessu nýja verki heldur hann áfram að færa listina út í almannarýmið og umbreyta hversdagslegum mannvirkjum í upplifun sem gleður bæði íbúa og gesti. Þegar nýja bókasafnið opnar síðar í mánuðinum verður fyrsta sagan sem gestir upplifa ekki inni á bókasafninu heldur strax fyrir utan dyrnar. Þar leiða bókarkilir, litir og list gesti upp tröppurnar – inn í heim þar sem ótal nýjar og gamlar sögur bíða þeirra.

