Gleðigangan 2026 með Hafnarfjarðarbæ

Fréttir

Öll eru hjartanlega velkomin að ganga með Hafnarfjarðarbæ í Gleðigöngunni 2026. Líkt og undanfarin ár verður bærinn með eigin bíl í göngunni og saman fögnum við fjölbreytileikanum, virðingunni og því að öll fái að vera nákvæmlega þau sjálf. Í fyrra slógu álfarnir og víkingarnir í gegn þegar þeir tóku í fyrsta sinn þátt í Gleðigöngunni og þeir snúa að sjálfsögðu aftur í ár.

Taktu þátt í Gleðigöngunni með Hafnarfjarðarbæ

Öll eru hjartanlega velkomin að ganga með Hafnarfjarðarbæ í Gleðigöngunni 2026. Líkt og undanfarin ár verður bærinn með eigin bíl í göngunni og saman fögnum við fjölbreytileikanum, virðingunni og því að öll fái að vera nákvæmlega þau sjálf.

Hinsegin Hafnarfjörður – saman sköpum við betri bæ

Langar þig að taka þátt? Þá þarftu aðeins að mæta við Hallgrímskirkju, finna hafnfirska hópinn og ganga með okkur. Í fyrra slógu álfarnir og víkingarnir í gegn þegar þeir tóku í fyrsta sinn þátt í Gleðigöngunni og þeir snúa að sjálfsögðu aftur í ár. Líkt og áður verður bíll bæjarins vel skreyttur og saman sköpum við litríka og eftirminnilega stemningu þar sem gleði, fjölbreytileiki og samstaða fá að njóta sín.

Hápunktur Hinsegin daga

Gleðigangan er einn af hápunktum Hinsegin daga og mikilvægt tækifæri til að sýna stuðning við samfélag þar sem öll fá að vera þau sjálf. Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á virðingu, jafnrétti og fjölbreytileika – því þannig byggjum við enn betri bæ.

Hagnýtar upplýsingar

• Gleðigangan fer fram laugardaginn 8. ágúst kl. 14:00
• Mæting er kl. 13:00 fyrir framan Hallgrímskirkju
• Bolur í boði bæjarins. Fyrir framan Hallgrímskirkju verður hægt að sækja bol og skraut áður en lagt er af stað. Ef þú átt bol frá fyrri árum hvetjum við þig endilega til að mæta í honum

Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa, starfsfólk og öll áhugasöm til að fjölmenna og taka þátt í göngunni undir merkjum bæjarins. Því fleiri sem ganga saman, því sterkari verða skilaboðin um samfélag þar sem öll eiga heima.

  • Frelsi til að vera.
  • Frelsi til að elska.
  • Frelsi til að blómstra.
  • Frelsi til að fagna.

Göngum saman – og gerum Gleðigönguna enn litríkari

Almennar upplýsingar um Gleðigönguna 2025

Ábendingagátt