Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En það þarf líka hugrekki til þess að láta sig málið varða,“ segir Vala Steinsdóttir, formaður foreldraráðs Hafnarfjarðar, í nýju myndbandi ráðsins. Fjöldi þekktra einstaklinga tekur þátt, gefur ráð og hvetur til lífs, hreyfingar og afþreyingu í raunheimum. Sjáðu myndbandið.
„Leggjum frá okkur símana og gerum eitthvað skemmtilegt saman,“ segir Guðjón Karlsson, Gói leikari, í nýju myndbandi foreldraráðs Hafnarfjarðarbæjar. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona botnar: „Eins og til dæmis að fara í sund.“
Fjöldi þekktra einstaklinga leggja Foreldraráði Hafnarfjarðar lið í myndbandinu. Nína Dögg Filippusdóttir leikkona, Elín Klara Þorkelsdóttir landliðskona í handbolta og íþróttakona Hafnarfjarðar 2023 og 2024, Bjarni Fritz þjálfari og Anton Sveinn McKee, Íslands og Norðurlandameistari í sundi og Ólympíufari sem hvetur unga fólkið og fjölskyldur þeirra til að setja sér stór markmið.
„Draumarnir rætast í raunheimum,“ segir hann. Silja Úlfarsdóttir þjálfari og hlaðvarpsstjórnandi hvetur öll til að huga að svefni og næringu. „Við ætlum að fara út að hreyfa okkur.“ Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona bendir á að nýta nærumhverfið. Þorgrímur Þráinsson hvetur til samskipta. Tvö ný orð á dag séu fjársjóður til frambúðar.
Vala Steinsdóttir, formaður foreldraráðs Hafnarfjarðar, bendir á að það þarf heilt þorp til að ala upp barn. „En það þarf líka hugrekki til þess að láta sig málið varða. Við í foreldraráði trúum því að með sameiginlegu átaki getum við byggt upp samfélag þar sem að börnin okkar fá að blómstra.“
Myndbandið var sýnt á síðasta fundi fundaraðarinnar Við erum þorpið. Fundurinn bar yfirskriftina: Horfumst í augu. Fundaröðin er um líðan og öryggi ungs fólks. Hún er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.
„Þetta byrjar hjá okkur,“ sagði Vala formaður foreldraráðsins. „Við erum þorpið.“
Myndir/Skjáskot úr myndbandinu
Frisbígolffélag Hafnarfjarðar í samstarfið við Folfdiskar.is færði í gær Hafnarfjarðarbæ 13 frisbígolfskörfur og hundruð diska til að stunda frísbígolf innandyra…
Yfir 100 íbúðir og verslanir á jarðhæð verða við Reykjavíkurveg 60-62. Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu nýs Hrauns vestur og…
„Áttu erlendan vin eða erlendan nágranna sem er nýfluttur í bæinn?“ spyrja brúarsmiðir Hafnarfjarðarbæjar sem hjálpa foreldrum af erlendum uppruna…
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi…
Hvað gerir bæjarstjóri? spurðu elstu börnin í Hlíðarendaleikskóla þegar þau heimsóttu Valdimar Víðisson bæjarstjóra nú í morgun. Börnin komu með…
„Ég hvet því íbúa Hafnarfjarðar til þess að fara inn á heimasíðu UNICEF þar sem hægt er að sækja sér…
Aldrei hafa fleiri sótt um í Verkhernum og í ár. Verkherinn er atvinnuúrræði fyrir hafnfirsk ungmenni með skerta starfsgetu. Verkherinn…
Leikskólinn Hörðuvellir fagnaði 90 ára afmæli í dag, föstudag. Börnin sungu og stjórnendur rifjuðu upp söguna. „Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið…
Fjöldi hafnfirskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína á ráðstefnuni HITTUMST í Hafnarhúsinu í gær. Bæjarstjórinn kíkti við ásamt stjórum nágrannasveitarfélaganna.
Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta…