Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma. Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í átakinu með því að vekja athygli á verkefninu og hvetja rúmlega 2000 starfsmenn bæjarins til að klæðast rauðu föstudaginn 19. febrúar
GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma. Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í átakinu með því að vekja athygli á verkefninu og hvetja rúmlega 2000 starfsmenn bæjarins til að klæðast rauðu föstudaginn 19. febrúar.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á þessum sjúkdómum. Hafnarfjarðarbær tekur virkan þátt í átakinu með því að vekja athygli á verkefninu og hvetja rúmlega 2000 starfsmenn bæjarins til að klæðast rauðu föstudaginn 19. febrúar.
GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation og hófst á Íslandi árið 2009. Um er að ræða samstarfsverkefni Hjartaverndar, Hjartaheilla, Heilaheilla og fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga. Verndari átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Formaður stjórnar GoRed er Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sérfræðingur í hjartalækningum.
Konur eru oft ekki meðvitaðar um eigin áhættu og áhættuþætti. Samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar eykst tíðni áhættuþátta hjá konum eftir 50 ára aldur, og má þar nefna hækkaðan blóðþrýsting, hátt kólesteról, sykursýki og ofþyngd. Jákvætt er að verulega hefur dregið úr reykingum á Íslandi en reykingar eru mjög stór áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma, ekki síst hjá konum. Með hollu mataræði og reglubundinni hreyfingu má hafa áhrif á flesta áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. Það eru einungis fáein ár síðan farið var að leggja áherslu á að miðla sérstaklega upplýsingum til kvenna og heilbrigðisfagfólks um hve tíðni hjarta- og æðasjúkdóma er há hjá konum. Mikilvægt er að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og heilaæðasjúkdóma til að geta brugðist skjótt við.
Hér má sjá Facebook síðu átaksins og eru allir hvattir til að senda inn mynd af sér í rauðu á morgun, föstudaginn 19. febrúar, sem er hinn opinberi dagur GoRed átaksins.
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…