Götusópun innan hverfa er hafin

Fréttir

Vorsópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði hófst um miðjan mars með áherslu á sópun á aðalleiðum. Viðmið um vorsópun er 1. apríl – 1. maí ár hvert þar sem bænum er skipt upp í 15 hverfi og hvert hverfi sópað á einum degi. Sópun innan hverfa í Hafnarfirði hófst í vikunni og mun framvindan stýrist framvinda af veðri.

Hverfaskipting sópunar

Starfað er eftir ákveðinni verkáætlun sem felur í sér sópun á öllum hverfum á tímabilinu 2. apríl til 2. maí. Sett eru upp skilti við hvert hverfi degi fyrir sópun ásamt því að íbúar búsettir í hverfinu eiga að fá smáskilaboð um að þeirra hverfi verður sópað. Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa að taka virkan þátt þannig að árangurinn verði sem bestur. Nauðsynlegt er að hafa götur auðar af bílum þann dag sem sópað er þannig að mögulegt sé að sópa kantanna á milli. Íbúar og starfsfólk fyrirtækja geta samhliða nýtt tækifærið og sópað í kring hjá sér. Þannig verður heildin miklu fallegri ásýndar. Um leið og hverfasópun er lokið verður farið í háþrýstiþvott, sópun á aðalgötum og helstu safngötum ásamt miðeyjum. Verkáætlun er sett fram með fyrirvara um breytingar sem einna helst geta orðið vegna veðurs (frost) og seinkun hjá verktaka sem sér um sópunina.

Verkáætlun vorsópunar 2024

Sendu okkur ábendingu um það sem betur má fara

Við fögnum öllum ábendingum! Er eitthvað sem þér finnst þurfa að lagfæra í umhverfinu, þjónustu bæjarins eða vilt benda okkur á? Við fögnum öllum ábendingum, stórum sem smáum. Sendu okkur ábendingu í gengum ábendingagátt bæjarins.

Ábendingagátt