Hafðu áhrif – taktu þátt og mættu á kjörstað

Fréttir

Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi. Það að nýta kosningaréttinn sinn er sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins.  Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri.

Nýtum kosningaréttinn

Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi. Það að nýta kosningaréttinn sinn er sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins. Þótt það líti stundum út fyrir að atkvæði eins einstaklings skipti litlu máli, þá skiptir fjöldinn máli – og þegar við mætum á kjörstað eykst vægi málefna sem við viljum sjá breytast. Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri.

Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki þegar kemur að hinu daglega lífi íbúa og sjá meðal annars um leik- og grunnskóla, samgöngumál, íþrótta- og æskulýðsmál, samgöngur, húsnæðismál, skipulag hverfa og ýmsa frístundaþjónustu – allt hlutir sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks, þar með talið ungs fólks og innflytjenda. Þegar við kjósum, styrkjum við rödd okkar í ákvarðanatöku og hjálpum sveitarfélögum að taka ákvarðanir sem endurspegla raunverulegar þarfir og væntingar íbúa þeirra.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 17. apríl 2026. Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis. Nánari upplýsingar hér 

Hafðu áhrif – taktu þátt og mættu á kjörstað!

Nánari upplýsingar um kosningarnar almennt á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga 

Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði 

Auðlesið efni um sveitarstjórnarkosningarnar 2026 unnið af Fjölmennt

Ábendingagátt