Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Brátt kviknar á jólaandanum í Hafnarfirði. Sem fyrr stefnir allt í að aðventan verði ekki bara björt og fögur heldur einnig afar lífleg og fjörug. Hafnarfjörður er jólabærinn og hjartað, miðbærinn sjálfur, verður einstaklega fallegt. Hjartasvellið opnar föstudaginn 15. nóvember og Jólaþorpið í Hafnarfirði sama dag kl. 17.
Allt stefnir í að aðventan verði ekki bara björt og fögur heldur einnig afar lífleg og fjörug. Hjartasvellið opnar föstudaginn 15. nóvember rétt eins og Jólaþorpið í Hafnarfirði. Við bíðum spennt en það opnar kl. 17.
Jólabærinn Hafnarfjörður hefur hin síðustu ár stimplað sig rækilega inn í hug og hjörtu Hafnfirðinga, ferðamanna og vina Hafnarfjarðar. Íbúar og fyritækjaeigendur hafa lagst á eitt, sett upp jólahúfuna og dregið djúpt að sér jólaandann og tekið þátt. Þúsundir hafa sótt jólabæinn okkar heim á aðventunni og upplifað allt það sem fallegi bærinn okkar hefur upp á að bjóða í formi heilsueflingar, menningar, lista, veitinga, verslunar og þjónustu.
Jólabærinn Hafnarfjörður litar lífið
Jólin eru jafnt og þétt að færast yfir Hafnarfjörð. Nú næstu daga vinnur starfsfólk bæjarins við uppsetningu á jólaskreytingum vítt og breytt um bæinn. Ný ljós og skreytingar munu bætast jafn og þétt við næstu daga og vikur.
Jólablað Hafnarfjarðar verður gefið út um miðjan nóvember og mun líkt og síðustu fjögur ár vera fullt af hlýlegu efni um gefandi og góð verkefni í bænum, framsækin hafnfirsk fyrirtæki og fólkið sem bæinn byggir.
Já, það er ekki aðeins Hjartasvellið og Jólaþorpið á Thorsplani með öll sín fagurlega skreyttu jólahús og jólagleði sem prýða jólabæinn. Hellisgerði er einnig í fullum undirbúningi. Þar verður veitingasala í höndum A. Hansen sem gera yndislegar fjölskyldustundir í lystigarðinum mögulegar.
Hvatning til íbúa og fyrirtækja í bænum
Daginn er tekið að stytta og tími jólaljósanna við það að renna upp hjá mörgum. Hafnarfjarðarbær hvetur Hafnfirðinga til að setja jólaljósin sem fyrst upp!
Starfsfólk bæjarins vinnur sig jafnt og þétt í gegnum bæinn og setur upp ljós á fjölförnum stöðum og opnum svæðum. Allt er þetta gert með það fyrir augum að gleðja augað og andann og ýta undir jákvæða upplifun og ánægju þeirra sem leið eiga um bæinn hvort sem er gangandi, hlaupandi, hjólandi eða akandi.
Klæðum Hafnarfjörð í hátíðargallann og tökum þátt!
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…