Hátíðarhöld á Sjómannadaginn í Hafnarfirði

Fréttir

Sjómannadeginum í Hafnarfirði er fagnað með skemmtidagskrá við Flensborgarhöfn frá kl. 13-17 sunnudaginn 4. júní.  Kappróður, vinnustofur listafólks, björgunarleiktæki, siglingar, fiskasýning og margt fleira.

Til hamingju með daginn kæru sjómenn og fjölskyldur

Sjómannadeginum í Hafnarfirði er fagnað með skemmtidagskrá við Flensborgarhöfn frá kl. 13-17 sunnudaginn 4. júní. Fjölmargar sveitir eru skráðar í kappróður sem hefst kl. 13, vinnustofur listamanna við höfnina verða opnar gestum og gangandi og björgunarleiktæki Björgunarsveitar Hafnarfjarðar verða á sínum stað. Hjá Siglingaklúbbnum Þyt verður hægt að prófa kajaka og árabáta og fiskasýning Hafrannsóknastofnunar verður á svæðinu fyrir framan höfuðstöðvar stofnunarinnar á Háabakka. Hægt verður að skoða sýnishorn af fiskum og hryggleysingjum, allt frá algengum nytjafiskum eins og þorski og ýsu til sjaldséðari tegunda, og boðið upp á opið hús á fyrstu hæð.

Skemmtisigling, aflraunir og sýningar

Hafnarfjarðarhöfn býður uppá skemmtisiglingu á hálftíma fresti, skemmtidagskrá fer fram við Flensborgarhöfn, aflraunamenn etja kappi og sterkasti maður á Íslandi verður krýndur í lok dags. Á Strandstígnum hefur verið komið fyrir nýrri ljósmyndasýningu Byggðasafnins, í Bookless Bungalow er sýning um tímabil erlendu útgerðanna og í Siggubæ er hægt að sjá sýnishorn frá heimili sjómanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Aðstandendur hátíðarhaldanna hvetja Hafnfirðinga og gesti til þess að gera sér ferð niður að höfn og fagna Sjómannadeginum og njóta þess sem höfnin, sem bærinn er kenndur við, hefur upp á að bjóða.

Heildardagskrá Sjómannadagsins 

Ábendingagátt