Heimsmeistarar úr Hafnarfirði
Nemendur Listdansskóla Hafnarfjarðar skrifuðu um helgina nýjan kafla í sögu skólans þegar þeir náðu einstökum árangri á alþjóðlegri danskeppni í Dublin á Írlandi. Lið skólans sneri heim með tvo heimsmeistaratitla, sigur í lokahátíð keppninnar og fjölda annarra verðlauna eftir glæsilega frammistöðu.
Listdansskóli Hafnarfjarðar skaraði fram úr í Dublin
Nemendur Listdansskóla Hafnarfjarðar skrifuðu um helgina nýjan kafla í sögu skólans þegar þeir náðu einstökum árangri á alþjóðlegri danskeppni í Dublin á Írlandi. Lið skólans sneri heim með tvo heimsmeistaratitla, sigur í lokahátíð keppninnar og fjölda annarra verðlauna eftir glæsilega frammistöðu.
Harry-Potter einn af heildarsigurvegurum Gala-keppninnar
Atriðin Harry Potter og EAT urðu bæði heimsmeistarar í sínum flokkum og hlutu jafnframt boð á Gala-keppni mótsins þar sem aðeins sigurvegarar einstakra flokka fá tækifæri til að stíga aftur á svið. Þar hélt sigurgangan áfram þegar Harry Potter bar sigur úr býtum og varð einn af heildarsigurvegurum Gala-keppninnar. Auk heimsmeistaratitlanna vann Listdansskóli Hafnarfjarðar til þriggja bronsverðlauna og fimmta sætis í öðrum flokkum. Á bak við árangurinn liggja ótal æfingatímar, metnaður, samheldni og ástríða fyrir listdansinum.
Glæsileg viðurkenning á öflugu starfi
Listdansskóli Hafnarfjarðar hefur um árabil verið öflugur vettvangur fyrir börn og ungmenni til að rækta hæfileika sína og efla sjálfstraust, sköpunargáfu og gleði í gegnum dans. Árangurinn í Dublin er glæsileg viðurkenning á því öfluga starfi sem unnið er innan skólans og sýnir að hafnfirskir dansarar standa jafnfætis þeim bestu á alþjóðlegum vettvangi. Hafnarfjarðarbær óskar öllum dönsurum, kennurum, danshöfundum og aðstandendum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur. Þau eru sannarlega bænum til sóma og frábær fyrirmynd fyrir ungt fólk sem lætur drauma sína rætast með elju, samvinnu og gleði.





