Héldu upp á 90 ára afmæli Hörðuvalla

Fréttir

Leikskólinn Hörðuvellir fagnaði 90 ára afmæli í dag, föstudag. Börnin sungu og stjórnendur rifjuðu upp söguna. „Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið lifandi hluti af bæjarlífinu í nær heila öld,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri.

90 ára afmæli Hörðuvalla

„Það er mér mikill heiður og hjartans ánægja að standa hér í dag með ykkur og fagna þessum merku tímamótum, 90 ára afmæli leikskólans Hörðuvalla. Þetta er stór áfangi, ekki aðeins fyrir leikskólann sjálfan heldur líka fyrir samfélagið okkar hér í Hafnarfirði,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann fagnaði 90 ára afmæli Hörðuvalla, leikskólans við Lækinn, með leikskólastjórnendum og fulltrúum mennta- og lýðheilsusviðs nú í morgun.

Tók formlega til starfa 1935

Myndaalbúm með gömlum myndum. Elstu börnin sungu og ekki aðeins var sýning frá Byggðasafninu komin upp á grindverk við leikskólann heldur höfðu börnin einnig ímyndað sér afa sína og ömmur sem leikskólabörn, teiknað þau og skreytt veggina með.

Skólinn tók til starfa árið 1935 en tvö ár þar á undan fór þar fram sumarstarfsemi. Upphaflega var skólinn stofnaður af verkakonum í bænum.

Hörðuvellir lifandi hluti af bænum

„Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið lifandi hluti af bæjarlífinu í nær heila öld og átt stóran þátt í uppeldi og þroska ótal barna í gegnum tíðina.“ Hann nefndi að í rúm 90 ár hafi leikskólinn verið staður þar sem börn fái að vera börn, læra í gegnum leik og dafna á eigin forsendum.

„Hér hefur verið hlúð að hverju barni með virðingu, gleði og umhyggju,“ sagði hann og að það sem gerist í leikskóla eins og Hörðuvöllum hafi áhrif langt út fyrir skólatímann. „Það mótar einstaklinga, og það mótar samfélagið. Við sem stöndum í þjónustu bæjarins vitum að með því að fjárfesta í leikskólastarfi – í rými, aðstöðu, fólki og hugmyndum – erum við að fjárfesta í framtíðinni,“ sagði hann, lýsti yfir þakklæti fyrir starfið sem starfsfólk hafi innt af hendi og óskaði blómlegrar framtíðar.

„Til hamingju með afmælið – og innilega þakkir fyrir ykkar ómetanlega starf.“

Ábendingagátt