Helgin: Evolytes-ævintýri og gítarveisla
Logi og Stampi úr ævintýraheimi Evolytes bjóða börnum og fjölskyldum í sögustund á bókasafninu á laugardag. Gítarveisla Bjössa Thor verður í Ægi 220 um helgina og söfn bæjarins taka á móti gestum um helgina. Dagskráin heldur svo áfram í næstu viku með leik, föndri, bókaspjalli og tónlist.
Kókoshnetukeppni á bókasafninu
Hvor á fleiri kókoshnetur, Logi eða Stampi? Bestu vinirnir eru báðir sannfærðir um að eiga fleiri en hinn. Úr verður ævintýri þar sem börnin kynnast tölum og samanburði á magni. Já, helgin er yndisleg í Hafnarfirði og margt að gera fyrir fjölskyldufólk.
Laugardaginn 3. október kl. 13–14 Lesið verður úr Kókoshnetukeppninni eftir Írisi E. Gísladóttur í sögustund á Bókasafni Hafnarfjarðar í Firði. Bókin er fyrsta lesbókin úr Evolytes-ævintýraheiminum og hentar börnum á aldrinum 5–9 ára.
Síðar sama dag, kl. 15–17, hittist animeklúbbur bókasafnsins fyrir 14–16 ára. Þar geta ungir animeaðdáendur komið saman og deilt áhugamálinu.
Bjössi Thor á Ægi
Gítarinn verður í aðalhlutverki á Ægi 220 föstudaginn 2. og laugardaginn 3. október. Gítarveislan hefst kl. 20 bæði kvöldin.
Föstudagskvöldið er helgað Jimi Hendrix. Bjössi Thor, Guðmundur Pétursson, Óskar Logi og Brynhildur Oddsdóttir taka þá höndum saman, með Fúsa Óttars á trommum og Bjarna Sveinbjörnssyni á bassa.
Á laugardag taka djass, fönk og kántrí við. Andrés Þór og Börkur Hrafn verða meðal þeirra sem koma fram og Bjössi og Krummi Björgvins minnast Björgvins Halldórssonar. Samhliða tónleikunum verður ljósmyndasýning Ástu Magg með myndum frá Gítarveislum fyrri ára.
List og saga um helgina
Ókeypis ævintýri eru víðar en á bókasafninu. Sýningarnar spássían, haustsýning safnsins, og Bjarmaband með verkum Frosta Fjalar standa yfir í Hafnarborg. Opið er kl. 12–17 föstudag, laugardag og sunnudag.
Byggðasafnið býður líka upp á ferð í fortíðina. Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð eru opin kl. 11–17 laugardag og sunnudag. Í Pakkhúsinu má meðal annars skoða sögu bæjarins, leikfangasýningu og sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður. Aðgangur er ókeypis á söfnin í Hafnarfirði.
Já, helgin er alltaf falleg í Hafnarfirði.
Leikur og föndur á mánudag
Horfum nú aðeins inn í nýja viku. Mánudaginn 5. október kl. 12–14 býður opni leikskóli Memmm til samveru, leiks og söngstundar á bókasafninu. Stundirnar eru ætlaðar þeim sem eru heima með börn á aldrinum 0–5 ára. Ekki þarf að skrá sig til leiks, bara mæta.
Síðdegis, kl. 16–18, tekur mánudagsföndrið við í listasmiðjunni í Önnustofu á bókasfaninu. Efniviður er á staðnum og gestir geta sest niður og skapað saman.
Tónlist, skynjunarleikur og bókaspjall á þriðjudag
Þriðjudaginn 6. október kl. 12–12.30 syngur Rósalind Gísladóttir á hádegistónleikum Hafnarborgar við undirleik Antoníu Hevesi.
Á bókasafninu verður einnig nóg um að vera:
- Kl. 13–14.30: Íslenskuspjall með sjálfboðaliðum Rauða krossins.
- Kl. 14–16: Skynjunarleikstund Plánetu fyrir börn, sérstaklega á aldrinum sex mánaða til fjögurra ára, með foreldrum eða öðrum umönnunaraðilum. Aðgangur er ókeypis og gott að hafa aukaföt meðferðis.
- Kl. 17–18.45: Kit/Cosplay, sauma- og hönnunarsmiðja fyrir þau sem vilja vinna að búningum eða eigin fatnaði.
- Kl. 17.30–18.30: Bókaklúbburinn Síðan fyrir 16–25 ára. Þátttakendur ræða bækur út frá þemaspurningum, snarl er í boði og þátttaka ókeypis.
Komdu og njóttu þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða.
- Fylgstu með í viðburðadagatali bæjarins.