Helgin heillandi í Hafnarfirði – Sjáðu dagskrána

Fréttir

Álfahátíð í Hellisgerði, listamannaspjall og sýningarstjóraspjall í Hafnarborg. Svo eru söfnin opin um helgina. Já, það er frábær helgi í pípunum. Njótum hennar saman.

Verjum helginni saman í Hafnarfirði

Það verður sannkölluð ævintýra- og menningarstemning í Hafnarfirði um helgina. Álfar taka yfir Hellisgerði, listamenn og sýningarstjórar taka á móti gestum í Hafnarborg, ný sýning er í Litla Gallerý og söfn bæjarins bjóða gesti velkomna. Tilvalið er að taka daginn snemma, rölta um miðbæinn og njóta þess sem Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða.

 

Álfarnir taka yfir Hellisgerði

Stærsti fjölskylduviðburður helgarinnar er án efa Álfahátíðin í Hellisgerði sunnudaginn 16. ágúst frá kl. 13–16. Þá fyllist einn fallegasti garður bæjarins af álfum, tónlist, leikjum og ævintýrum fyrir börn og börn í anda.

Á sviðinu koma meðal annars fram:

  • Íþróttaálfurinn og Solla
  • Þorri og Þura,
  • dansálfar Listdansskóla Hafnarfjarðar
  • Benedikt búálfur.
  • og sjálfur Páll Óskar.

Um allan garð verður líf og fjör með andlitsmálningu, sirkussmiðju, sápukúlum, sykurpúðum og útileikjum.

 

Listamanna- og sýningarstjóraspjall í Hafnarborg

Um helgina er jafnframt síðasta tækifærið til að sjá tvær sumarsýningar Hafnarborgar. Við fáum einstaka innsýn inn í sýningarnar með listamannaspjalli og sýningarstjóraspjalli.

  • Laugardaginn 15. ágúst kl. 14 tekur myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson á móti gestum og ræðir um einkasýningu sína Stóran heim. Þar mætast draumkenndur veruleiki og vangaveltur um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna. Sýningunni lýkur sunnudaginn 16. ágúst.
  • Sunnudaginn 16. ágúst kl. 14 tekur Daría Sól Andrews sýningarstjóri síðan á móti gestum og veitir innsýn í sýningu Sveins Fannars Jóhannssonar, May Show Signs of Minor Defects. Í verkum sínum vinnur Sveinn meðal annars með fundnar ljósmyndir og efni sem hefur færst úr upprunalegu samhengi sínu. Sýningunni lýkur einnig á sunnudag.

Hafnarborg er opin frá kl. 12–17 og ókeypis er inn á safnið og bæði spjöllin.

 

Hljóð í Litla Gallerý

Listunnendur geta líka lagt leið sína í Litla Gallerý um helgina. Þar stendur yfir sýningin Hljóð // Markús Bjarnason / Stúdíó Suð frá föstudeginum 14. ágúst til sunnudagsins 16. ágúst.

Sýningin fjallar um hljóð í ólíkum birtingarmyndum; hljóð sem verður til og hljóð sem hverfur. Þar mætast meðal annars hljóðdempandi málverk og ólíkar hugmyndir um hljóð og þögn. Sýningin opnar kl. 18 á föstudag og stendur til kl. 18 á sunnudag.

 

Handboltabærinn og saga Hafnarfjarðar

Það er líka tilvalið að nýta helgina til að kíkja á Byggðasafn Hafnarfjarðar. Í Pakkhúsinu á Vesturgötu 6 má meðal annars sjá sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður, þar sem saga handboltans í bænum er rakin allt frá fyrstu árum íþróttarinnar og fram til dagsins í dag.

Fleiri sýningar Byggðasafnsins er að finna víða um bæinn, meðal annars í Sívertsens-húsi og Beggubúð auk útisýninga, og einmitt ein þeirra í Hellisgerði sem hægt er að njóta á Álfahátíðinni.

Höfum líka í huga að það er opið í Siggubæ um helgar.

 

Gerum okkur glaðan dag í Hafnarfirði

Já, Hafnarfjörður er málið þessa helgi sem aðrar. Hægt er að byrja á list og sögu, rölta um miðbæinn, kíkja á sýningar, njóta ævintýraheims álfanna í Hellisgerði. Enda svo daginn á góðu kaffihúsi eða matsölustað hér í bæ

Sjáðu alla viðburði í Hafnarfirði og það sem er fram undan á viðburðasíðu bæjarins.

Ábendingagátt