Helgin í Hafnarfirði: Jóga, list og leiðsögn
Heilsan og andinn ráða ríkjum í Hafnarfirði um helgina. HamingjuJógaNidra í Hellisgerði á laugardeginum, lokasýningarhelgi Guðnýjar Magnúsdóttur í LitlaGallerý og þétt sunnudagsdagskrá í Hafnarborg. Þar leiðir Aðalsteinn Ingólfsson til að mynda gesti um Bjarmaband kl. 14.
Hamingjan í Hafnarfirði um helgina
Notalegur menningar- og hamingjublær verður yfir Hafnarfirði um helgina. Hægt verður að leggjast í djúpslökun í Hellisgerði, skoða myndlist í Litla Gallerý og verja sunnudeginum í Hafnarborg þar sem ljós, rými og íslensk myndlist verða í aðalhlutverki.
- Laugardagur 12. september HamingjuJógaNidra í Hellisgerði kl. 12, í lautinni við Skúlaskeið.
- Sunnudagur 13. september Að vera – sýning Guðnýjar Magnúsdóttur í LitlaGallerý. Þetta er því síðasta sýningarhelgin.
- Sunnudagur 13. september Spássían: 11:28–15:32 _ 13.09.26 í Hafnarborg. Safnið opnar sérstaklega kl. 11:28 vegna verks Daníels Ágústs Ágústssonar.
- Sunnudagur 13. september kl. 14 Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur leiðir gesti um Bjarmaband, sýningu Frosta Fjalar, í Hafnarborg.
HamingjuJógaNidra í Hellisgerði
Hamingjudagar halda áfram. Á laugardag kl. 12 verður boðið upp á HamingjuJógaNidra í lautinni við Skúlaskeið í Hellisgerði.
Kristjana Jökumsen frá Hugur í hjarta leiðir þátttakendur í gegnum Yoga Nidra, djúpslökun sem ætlað er að hjálpa líkama og huga að losa um spennu, draga úr streitu og endurnýja orkuna. Engin reynsla af jóga er nauðsynleg og öll velkomin.
- Gott er að mæta í þægilegum fötum og taka með dýnu, kodda og teppi.
Síðasta sýningarhelgi Guðnýjar í Litla Gallerý
Um helgina gefst síðasta tækifærið til að sjá einkasýningu Guðnýjar Magnúsdóttur, Að vera, í Litla Gallerý.
Guðný kannar í verkunum líkamann sem lifandi skrá minninga, upplifana og umbreytinga. Hún veltir meðal annars fyrir sér sambandi líkama og sálar, sjálfsmyndar, innsæis og þess hvað felst í því að vera manneskja. Hún vinnur með fjölbreytt efni á borð við handgerðan pappír, postulín, málm, kakó, fundið efni og lífræn form og leitar jafnvægis milli viðkvæmni og styrks.
- Að vera er önnur einkasýning Guðnýjar og sú fyrsta eftir að hún lauk BA (Hons) námi í Fine Art frá University of Cumbria.
Sólarljósið verður hluti af listaverkinu
Hafnarborg opnar óvenju snemma á sunnudaginn, eða nákvæmlega kl. 11:28, vegna verks Daníels Ágústs Ágústssonar 11:28–15:32 _ 13.09.26, sem er hluti af haustsýningu safnsins, spássíunni.
Verkið tekur mið af sólarljósinu sem streymir inn um hringlaga gluggann á gafli Hafnarborgar. Daníel hefur rakið feril ljóssins um sýningarrýmið einmitt þennan dag, 13. september, frá kl. 11:28 til 15:32. Gestir geta því fylgst með ljósinu færast um rýmið og upplifað samspil verks, birtu og byggingar.
- Listamaðurinn verður á staðnum og gefst gestum tækifæri til að ræða við hann og upplifa verkið á þeirri stundu sem það vísar til. Aðgangur er ókeypis.
Bjarmaband undir leiðsögn Aðalsteins Ingólfssonar
Sama dag, sunnudaginn 13. september kl. 14, leiðir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur gesti um sýninguna Bjarmaband í Hafnarborg og fjallar um verk Frosta Fjalar, feril hans og stöðu í íslenskri myndlist.
Frosti Fjalar, áður Jakob Jónsson, átti meira en hálfrar aldar langan listferil. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratugnum dró hann sig úr opinberu listalífi en hélt áfram að skapa af miklum krafti. Eftir hann liggja um sex þúsund vatnslitamyndir og um átta hundruð málverk. Verk hans einkennast meðal annars af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri litavitund.
- Sýningarstjóri Bjarmabands er Ásdís Spanó. Aðgangur að leiðsögninni er ókeypis og öll velkomin.
Njóttu helgarinnar í Hafnarfirði
Hvort sem hugurinn leitar í kyrrðina í Hellisgerði, myndlist í miðbænum eða sérstakan leik sólarljóssins í Hafnarborg ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um helgina.
Viðburði og nánari upplýsingar má finna í viðburðadagatali Hafnarfjarðarbæjar. Hér.