Hin árlega dorgveiðikeppni

Fréttir

Þriðjudaginn 28. júní 2016 standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára.

Þriðjudaginn 28. júní 2016 standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára.

Dorgveiðikeppni með rúmlega 20 ára sögu

Í rúm 20 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og í fyrra tóku rúmlega 300 börn þátt.  Á færi þátttakenda komu hin ýmsu sjávardýr eins og koli, ufsi, þorskur, marhnútar og krabbar. Keppendur fá veiðarfæri á keppnisstað og þar verður einnig hægt að fá beitu og leiðbeiningar frá starfsmönnum. Verðlaun verða veitt fyrir stærsta fiskinn, flestu fiskanna og  svokallaðan furðufisk. Þá verður það leikjanámskeið sem veiðir flesta fiska verðlaunað. Rapala gefur vegleg verðlaun.  Leiðbeinendur íþrótta- og leikjanámskeiðanna verða með öfluga gæslu auk þess sem Siglingaklúbburinn Þytur verður með björgunarbát á svæðinu. Keppnin hefst kl. 13:30 og lýkur um kl. 15:00. Allir krakkar á aldrinum sex til tólf ára eru velkomnir og hvattir til að taka þátt.

Nánari upplýsingar veitir Linda Hildur Leifsdóttir, fagstjóri frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ í síma: 585 5760 og 664 5760, netfang: lindah@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt