Hjólað í vinnuna að hefjast – vertu með!

Fréttir

Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll áhugasöm til að vera með og skrá sig til leiks í þessu hvetjandi og góða heilsueflandi framtaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Vinnustaðakeppnin fer fram dagana 8. – 28. maí

Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst í dag. Keppnin fer fram dagana 8. – 28. maí. Opnað var fyrir skráningu 17. apríl síðastliðinn og stendur skráning enn yfir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll áhugasöm til að vera með og skrá sig til leiks í þessu hvetjandi og góða heilsueflandi framtaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Hugum að heilsunni og daglegri hreyfingu

Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi og frábær tími til að huga að heilsunni og daglegri hreyfingu. Átakið er góð leið fyrir vinnustaði landsins til að huga að starfsandanum og til þess að hressa upp á stemninguna. Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru kjörin leið til útivistar, frábær hreyfing og þar með góð líkamsrækt. Munum bara eftir skynseminni í umferðinni, hjálminum og bjöllunni góðu. Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Að skrá sig til leiks:

  1. Farið er inná vef Hjólað í vinnuna – hjoladivinnuna.is
  2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
  3. Stofnaðu þinn eigin aðgang ef þú átt ekki aðgang nú þegar með því að búa þér til notendanafn og lykilorð eða skrá þig inn með Facebook.nafn og lykilorð.
  4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
  5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inn á vef Hjólað í vinnuna og er að finna leiðbeiningar á ensku í skjali neðst á síðunni. Ef upp koma vandamál við skráningu er hægt að hafa samband beint við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í síma 514-4000 eða senda tölvupóst á netfangið hjoladivinnuna@isi.is. Á heimasíðu verkefnisins er yfirlit yfir allar helstu reglur Hjólað í vinnuna. Allir þátttakendur eru hvattir til að deila efni og reynslu sinni úr Hjólað í vinnuna:

Senda inn myndir – Senda inn myndir | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)

Senda inn myndband – Senda inn myndband | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)

Senda inn frásögn – Skrá reynslusögu | Hjólað í vinnuna (hjoladivinnuna.is)

Ábendingagátt