Hjörtun sem ramma inn minningarnar í Hafnarfirði

Fréttir

Það er fátt sem segir jafn mikið til um sumarið í Hafnarfirði og mynd við eitt af stóru hjörtunum sem prýða miðbæinn. Á hverju ári verða þau hluti af ótal minningum – samveru fjölskyldu og vina, brúðkaupum, ferðalögum, útskriftum og gleðistundum stórra sem smárra.

Hjörtun sem hluti af ótal minningum 

Það er fátt sem segir jafn mikið til um sumarið í Hafnarfirði og mynd við eitt af stóru hjörtunum sem prýða miðbæinn. Á hverju ári verða þau hluti af ótal minningum – samveru fjölskyldu og vina, brúðkaupum, ferðalögum, útskriftum og gleðistundum stórra sem smárra.

Hvert hjarta hefur sinn karakter

Í ár hafa hjörtun enn á ný fengið nýjan svip. Þau eru áfram þrjú talsins og hvert þeirra hefur sinn karakter, en saman mynda þau samræmda heild þar sem litir, blóm og efniviður endurspegla sameiginlegt sumarþema. Í Hellisgerði stendur brúðkaupshjartað, enda er garðurinn einn vinsælasti staðurinn fyrir brúðkaupsmyndatökur í Hafnarfirði. Við Bæjartorg, við enda Strandgötunnar, er ástarhjartað og við upphaf Strandgötunnar, gegnt Hafnarfjarðarkirkju, tekur sumarhjartað á móti gestum og gangandi. Á bak við skreytingarnar stendur Bryndís Eir Þorsteinsdóttir hjá Blómdís Blómahönnun. „Hugmyndin er að hvert hjarta hafi sína eigin sögu“. Bryndís segir skemmtilegasta hlutann vera að skapa upplifun sem fólk verður hluti af.

Hjörtun lifna við við notkun

„Við reynum að gefa hverju hjarta sinn eigin sjarma en um leið láta þau tala saman. Þess vegna er alltaf sameiginlegur þráður í litavali, blómum og efniviði, þó hvert hjarta hafi sitt þema.“ Hún segir jafnframt að það sé einstök tilfinning að sjá hvernig hjörtun lifna við þegar fólk tekur þau í notkun. „Það gleður alltaf að sjá fólk stoppa, setjast á bekkinn, taka myndir og skapa minningar. Hjörtun eru ekki bara skraut – þau verða hluti af stórum og smáum augnablikum í lífi fólks.“

Orðin hluti af bæjarandanum allt árið um kring

Í gegnum árin hafa hjörtun tekið á sig ólíkan svip eftir árstíðum. Þau hafa verið skreytt í anda vors, sumars, hausts og vetrar og eru orðin fastur hluti af bæjarandanum. Jólahjörtun eru upplýst og einstök og orðin órjúfanlegur hluti af aðventunni í jólabænum Hafnarfirði. Hjörtun minna okkur á að stundum eru það litlu hlutirnir sem gleðja mest – fallegt umhverfi, litadýrð blómanna og staður þar sem fólk stoppar, brosir og tekur mynd sem geymir góða stund og minningar.

Ef þú átt leið um bæinn í sumar, gefðu þér augnablik til að skoða hjörtun. Kannski verður næsta uppáhaldsmyndin þín tekin þar.

Ábendingagátt