Hvaleyrarskóli í samstarf við Golfklúbbinn Keili
Næsta vetur munu elstu börnin á frístundaheimilinu í Hvaleyrarskóla fá tækifæri til að kynnast golfíþróttinni á nýjan hátt. Verkefnið er samstarf frístundar og Golfklúbbsins Keilis og miðar að því að kynna börnum í 3. og 4. bekk fyrir íþróttinni, efla tengsl við nærsamfélagið og skapa ný tækifæri til þátttöku í tómstundastarfi.
Skapa ný tækifæri til þátttöku í tómstundastarfi
Næsta vetur munu elstu börnin á frístundaheimilinu í Hvaleyrarskóla fá tækifæri til að kynnast golfíþróttinni á nýjan hátt. Verkefnið er samstarf frístundar og Golfklúbbsins Keilis og miðar að því að kynna börnum í 3. og 4. bekk fyrir íþróttinni, efla tengsl við nærsamfélagið og skapa ný tækifæri til þátttöku í tómstundastarfi. Verkefnið fékk styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar í vor. Við ræddum við Margréti Heiðu Magnúsdóttur, deildarstjóra tómstundamiðstöðvar skólans og Pál Sigurð Sigurðsson, aðstoðardeildarstjóra.
„Hugmyndin kemur í raun upprunalega frá Kristni skólastjóra,“ segir Margrét Heiða. „Hann hafði tengsl við Keili í gegnum fjölskyldu og þar kviknaði hugmyndin um að kanna hvort hægt væri að byggja upp samstarf.“ Verkefnið hafi einnig sprottið úr reglulegu samráði skóla- og frístundastarfs í hverfinu. „Við hittumst reglulega með fulltrúum frá öðrum skólum og frístundaheimilum og ræðum meðal annars hvernig hægt sé að auka þátttöku barna í skipulögðu tómstundastarfi. Við erum alltaf að leita leiða til að kynna börnum nýja möguleika og tengja þau við íþróttafélögin í nærumhverfinu.“
Ný upplifun fyrir elstu börnin
Samstarfið verður þannig að börn í 3. og 4. bekk fara einu sinni í viku í Keili þar sem þjálfari frá golfklúbbnum tekur á móti hópnum. Starfsmaður frá frístundaheimilinu fylgir þeim og börnin fá kennslu í grunnatriðum golfsins. „Styrkurinn sem við fengum nýtist meðal annars til að kaupa búnað og greiða fyrir þjálfunina. Markmiðið er fyrst og fremst að bjóða upp á skemmtilega og öðruvísi upplifun. Við förum ekki mikið út fyrir hefðbundið starf yfir veturinn og því fannst okkur spennandi að prófa eitthvað nýtt, einnig fyrir þann fjölda barna sem er hér af erlendum uppruna og stunda ekki tómstundir eftir skóla að staðaldri.“
Þau benda á að verkefnið geti einnig verið góð viðbót fyrir elstu börnin á frístundaheimilinu. „Fjórði bekkur hefur oft verið lengi hjá okkur og stundum þarf að finna eitthvað sem er sérstaklega ætlað þeim. Þetta gefur þeim tækifæri til að gera eitthvað saman sem hópur og prófa nýja hluti,“ segir Margrét Heiða.
Vonast til að vekja áhuga á golfi
Þótt verkefnið sé fyrst og fremst hugsað sem skemmtileg viðbót við frístundastarfið sjá þau einnig tækifæri í því að kynna börnum íþrótt sem þau þekkja kannski lítið til. „Það eru vissulega einhver börn sem æfa golf nú þegar, en mörg hafa aldrei prófað það. Okkur fannst mikilvægt að kynna íþróttina fyrir öllum börnum, óháð bakgrunni eða fyrri reynslu. Kannski kviknar áhugi hjá einhverjum og þau vilja halda áfram.“
Síðustu vikur og á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.