Innritun nemenda í grunnskóla haustið 2023

Fréttir

Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2023 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna.

Opið fyrir innritun nemenda haustið 2023

Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2023 og er fyrsta viðmið um umsóknarfrest 1. febrúar. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum og eru foreldrar hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna. Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt upp í skólahverfi og ræður lögheimili nemenda því í hvaða hverfisskóla þeir eiga vísa skólavist. Hægt að sækja um skóla í öðrum hverfum og getur umsókn fyrir 1. febrúar skipt þar máli hvort möguleiki sé að fara í skóla utan eigin skólahverfis. Innritun barna í grunnskóla er á ábyrgð foreldra/forsjáraðila.

Innritun fer fram rafrænt í gegnum MÍNAR SÍÐUR undir: Umsóknir – Grunnskólar – Skólavist í grunnskóla. Athugið að einungis er hægt að sækja um grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á vef bæjarins. Umsóknir um aðra grunnskóla í sveitarfélaginu og í grunnskóla í öðrum sveitarfélögum þurfa að berast beint til viðkomandi skóla og ef/þegar sú skólavist er samþykkt þarf að sækja um greiðsluþátttöku Hafnarfjarðarbæjar vegna skólavistarinnar. Sótt er um rafrænt í gegnum MÍNAR SÍÐUR undir:

Ítarlegri upplýsingar sendar frá skóla þegar nær dregur

Þegar nær dregur vori mun sá skóli þar sem barn fær skólavist senda foreldrum/forráðamönnum allar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið, m.a. um skráningar á frístundaheimili og í mataráskrift, leikjanámskeið fyrir 6 ára í ágúst áður en grunnskólinn hefst og annað það sem mikilvægt er að vita.

Ábendingagátt