Íþróttir sem brú að nýjum tækifærum

Fréttir

Skarðshlíðarskóli, Hraunvallaskóli og Hvaleyrarskóli hafa undanfarið skólaár verið í samtali við íþróttafélögin í hverfunum og Jónu Rán Pétursdóttur, forvarnafulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ til að finna út hvernig hægt er að auka þátttöku barna af erlendum uppruna í íþróttum. Samtalið er að skila sér í innleiðingu á þróunarverkefninu Brúin að íþróttum.

Um sextíu börn af erlendum uppruna kynnast íþróttum næsta skólaár

Skarðshlíðarskóli, Hraunvallaskóli og Hvaleyrarskóli hafa undanfarið skólaár verið í samtali við íþróttafélögin í hverfunum og Jónu Rán Pétursdóttur, forvarnafulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ til að finna út hvernig hægt er að auka þátttöku barna af erlendum uppruna í íþróttum. Á fundina mættu einnig Brúarsmiðir, menningartenglar á mennta- og lýðheilsusviði bæjarins. Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla, sagði okkur frá verkefninu sem nefnist Brúin að íþróttum„Fulltrúar íþróttafélaganna komu í skólana þrjá og héldu kynningar fyrir börnin. Það var útbúinn bæklingur um íþróttafélögin í hverfinu sem var dreift til nemenda því við erum að reyna að finna leiðir til að ná til þessa hóps. Þessir þrír grunnskólar eru með hátt hlutfall nemenda af erlendum uppruna,“ segir Ingibjörg.  

Þau hafi svo viljað fara enn lengra en að ræða þessi mál og sóttu því um styrk úr menntasjóðnum þegar hann var auglýstur. „Í þessu verkefni er of viðamikið að ætla að vera með öll íþróttafélögin í hverfinu. Því ákváðum við að vinna með Haukunum og sjá hvernig verkefnið myndi ganga. Við vinnum þetta með frístundaheimilum skólanna, þar sem börn eru frá 1. – 4. bekkjar. Ástæðan er að ef við náum þeim svona ungum, þá er meiri líkur á að þau haldi áfram æfingum,“ segir hún og bætir við að með henni haldi Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri Hvaleyrarskóla og Lars Imsland, skólastjóri Hraunvallaskóla, utan um verkefnið. 

„Þessi börn, eins og öll önnur, búa yfir allskonar hæfileikum“

„Við viljum fá hærra hlutfall af nemendum af erlenum uppruna að æfa íþróttir, koma þeim í virkni og vera í íslensku málumhverfi stærri hluta dagsins. Sum eru t.d. ekki í frístund hjá okkur og við viljum auðvelda þeim að aðlagast íslensku samfélagi og að þau upplifi að þau fái tækifæri til að æfa íþróttir. Öll börn hafa gott af hreyfingu.“ 

Allar íþróttagreinar sem Haukar bjóði upp á verði kynntar þessum börnum í sex skipti í haust og svo aftur næsta vor og í kjölfarið geti börnin, ef þau finna sig, mætt á æfingar. „Þessi börn, eins og öll önnur, búa yfir allskonar hæfileikum og styrkleikum og geta þá kannski fengið að blómstra í íþróttum. Við höfum séð það í öðru sem er gert hérna í skólanum, t.d. í gegnum tónlist, þá hafa börn sem aldrei hafa snert hljóðfæri ná góðum tökum á skömmum tíma,“ segir Ingibjörg.  

Styrkurinn muni fara í að greiða þjálfurum laun og útvega rútu til að aka börnunum til og frá skólunum. Þetta mun fara fram á þeim tíma sem börnin eiga að vera í frístund eða farin heim eftir skóla. „Við gerum ráð fyrir að þetta verði hátt í 20 börn frá hverjum skóla því þarf nokkra þjálfara til að taka á móti svona stórum hópi og kynna íþróttirnar fyrir þeim. Kynningarnar verða í Haukahúsinu áður en almennar æfingar hefjast á daginn . Ef þau svo vilja vera áfram og fara á almenna æfingu, þá er það líka velkomið. Markmiðið er að klára að undirbúa þetta svo það sé tilbúið í haust. Við þurfum að kynna þetta vel fyrir foreldrum, því þau þurfa að vera með okkur í liði og leyfa krökkunum að mæta,“  segir Ingibjörg afar bjartsýn.

Síðustu vikur og á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.

Ábendingagátt