Kynningarfundur Úti-Hamarsins 2024 í kvöld

Fréttir

Úti-Hamarinn er verkefni fyrir öll ungmenni á aldrinum 16-25 ára sem hafa áhuga á að kynnast útivist, nýju fólki, náttúruperlum í kringum höfuðborgarsvæðið og tærri gleði. Verkefnið er í umsjón ungmennahússins Hamarsins og taka þátttakendur sjálfir þátt í að móta dagskrána með hugmyndum að útivist, hreyfingu og nýjum stöðum.

 

Gleði og útivist fyrir ungmenni 16-25 ára

Úti-Hamarinn er verkefni sem öll á aldrinum 16-25 ára sem hafa áhuga á að kynnast útivist, nýju fólki, náttúruperlum í kringum höfuðborgarsvæðið eru hvött til að taka þátt í.

Verkefnið er í umsjón ungmennahússins Hamarsins og taka þátttakendur sjálfir þátt í að móta dagskrána með hugmyndum að útivist, hreyfingu og nýjum stöðum. Kynningarfundur verður haldinn í Hamrinum í dag, þriðjudaginn 9. apríl kl. 20.

Útivist og náttúra í nágrenninu

Mikilvægasta markmiðið með Úti-Hamrinum er að kynna útivist og náttúruna í nágrenninu fyrir ungu fólki. Enginn kostnaður er við að taka þátt nema þá fatnaður og nesti sem er á ábyrgð þátttakenda. Verkefnið endar svo í júní með 2-3 nátta útilegu.

Umsjónarmenn eru Margrét Gauja Magnúsdóttir, deildarstjóri ungmennahúsa, og leiðsögukona og Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri frístundastarfs og forvarnarfulltrúi. Verkefnið hefur í ár fengið veglega styrki. Alls 1,4 milljónir króna frá innflytjendasjóði, 500 þúsund krónur frá Lýðheilsusjóði og 600 þúsund frá Oddfellowstúkunni Gissuri hvíta. Fjárveitingarnar í ár tryggja ekki aðeins að Úti-Hamarinn verði í ár heldur einnig á næsta ári.

Kynningarfundur þriðjudaginn 9. apríl

Kynningarfundur verður haldinn í ungmennahúsinu Hamrinum að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði þriðjudaginn 9. apríl kl. 20. Fyrsti útivistarhittingurinn verður þriðjudaginn 18. apríl, tímasetning og staðarval verður auglýst síðar. Ef spurningar vakna er hægt að setja sig í samband við Möggu Gauju verkefnastjóra í Hamrinum í gegnum netfangið: mgm@hafnarfjordur.is, síma: 664-5551 eða með heimsókn í Hamarinn alla virka daga frá 10-16.

Úti-Hamarinn er dásamlegt verkefni þar sem ungt fólk fær tækifæri til að nýta sér náttúruperlurnar í kringum höfuðborgarsvæðið og efla andlega heilsu.

Ábendingagátt