Meiri hjálp hjá Berginu Headspace fyrir hafnfirsk ungmenni

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Þjónusta Bergsins Headspace við hafnfirsk ungmenni verður aukin. Hún verður í boði tvo daga vikunnar í stað eins áður í Menntasetrinu við Lækinn. Þetta er tryggt í samstarfsamningi bæjarins við Bergið Headspace.

Þjónusta við hafnfirsk ungmenni eykst

Þjónusta Bergsins Headspace við hafnfirsk ungmenni verður aukin. Hún verður í boði tvo daga vikunnar í stað eins áður í Menntasetrinu við Lækinn. Þetta var tryggt í samstarfsamningi bæjarins við Bergið Headspace í dag.

Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar, og Eva Rós Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Berginu Headspace, undirrituðu nýjan samstarfsamning í Ráðhúsi Hafnarfjarðar á dögunum.

Ungmenni á aldrinum 12-25 ára eiga tök á að sækja einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu sér að kostnaðarlausu hjá Berginu Headspace. Um er að ræða lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf og er þjónustan öllum opin.

Samstarf Bergsins og Hafnarfjarðar hefur sífellt aukist frá því það hófst árið 2021. Sífellt fleiri ungmenni nýta sér úrræðið.

  • Hægt er að óska eftir samtali við ráðgjafa Bergsins í gegnum heimasíðuna bergid.is, með því að hringa í Bergið á dagvinnutíma, eða með því að hafa samband í gegnum samfélagsmiðla.

Já, þetta er skref í að efla ungmennin okkar.

Myndatexti: Fanney D. Halldórsdóttur, sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar, Eva Rós Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Berginu Headspace, og Kristín Thoroddsen, formaður Fræðsluráðs Hafnarfjarðar.

Ábendingagátt