Minni flotkvíin í Hafnarfjarðarhöfn verður rifin
Litla flotkvíin í Hafnarfjarðarhöfn verður rifin. Grjótgarðurinn við höfnina verður rofinn og kvínni komið fyrir á lóð Vélsmiðju Orms og Víglundar þar sem hún verður klippt niður og flutt burt af sjó.
Ásýnd Hafnarfjarðarhafnar breytist
Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf. hefur óskað er eftir leyfi og samstarfi við Hafnarfjarðarhöfn til að klippa niður minni flotkví fyrirtækisins á lóð þess við Óseyrarbraut 31. Hafnarstjórn samþykkti það á fundi sínum í dag og leggur áherslu á að niðurrifið gangi eins hratt fyrir sig og kostur er. Einnig að grjótgarður verði færður í sama horf strax eftir að kvíin verður komin á land.
Guðmundur Fylkisson, formaður Hafnarstjórnar, lýsir því hvernig rjúfa þarf grjótvarnargarðinn þar sem Ormur og Víglundur séu til að koma flotkvínni á land.
„Svo þarf gott veður og hæsta flóð. Það gefst því færi tvisvar í mánuði til að flytja flotkvína til,“ segir hann og leggur áherslu á að enn eigi eftir að fá leyfi fyrir framkvæmdunum frá viðeigandi yfirvöldum. Höfnin hafi nú leyft að varnargarðurinn verði rofinn á meðan á flutningnum stendur. Þá er hægt að draga.
Guðmundur segir að eftir að flotkvíin verði klippt niður verði farið með brotajárnið niður á bryggju og það flutt burt. „Þannig þarf ekki að flytja kvína í gegnum bæinn,“ segir hann og fagnar áfanganum.
„Það er langþráður áfangi að litla flotkvíin fari. Við fögnum því að geta lagt hönd á plóg með að kvíin víki á sem þægilegastan máta.“
Mynd / Guðmundur Fylkisson