Nýr meirihluti í Hafnarfirði 2026-2030
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking undirrituðu síðdegis í gær nýjan málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Nýr málefnasamningur ber yfirskriftina: Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.
Nýr málefnasamningur fyrir Hafnarfjörð
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking undirrituðu síðdegis í gær nýjan málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Nýr málefnasamningur ber yfirskriftina: Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.
Flokkarnir verða með 7 af 11 bæjarfulltrúum í bæjarstjórn á nýju kjörtímabili. Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður áfram formaður bæjarráðs. Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, verður nýr forseti bæjarstjórnar. Sáttmálinn og meirihlutasamstarfið voru kynnt á blaðamannafundi í leikskólanum Áshamri í Hamraneshverfi.
Sameiginleg sýn flokkanna þriggja er að Hafnarfjörður verði öflugt, fjölskylduvænt og framsækið sveitarfélag þar sem traustur rekstur, sterk grunnþjónusta, kraftmikið atvinnulíf og aukin lífsgæði íbúa á öllum æviskeiðum fara saman, eins og segir í málefnasamningi flokkanna.
Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði
Meirihlutinn réði utanaðakomandi bæjarstjórna. Þórður Þórarinsson mun halda um stjórnartaumana og verða bæjarstjóri.

Viktor Pétur Finnsson (D), Árni Stefán Guðjónsson (C), Karólína Helga Símonardóttir (C), Hildur Rós Guðbjargardóttir (S), Orri Björnsson (D), Árni Rúnar Þorvaldsson (S), Kristín Thoroddsen (D) og nýr bæjarstjóri Þórður Þórarinsson.
Helstu verkefni samkvæmt málefnasamningi:
- Tryggja traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar
- Framkvæma skal rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á rekstri bæjarfélagsins með það að markmiði að stjórnsýsla verði skilvirkari og ákvarðanataka skýrari og skjótari
- Hagrætt verður í rekstri og skuldir bæjarins lækkaðar, á sama tíma og tryggt verður að ekki komi til þjónustuskerðingar
- Útsvar verður ekki hækkað á kjörtímabilinu og fasteignagjöld í sveitarfélaginu hækka ekki umfram verðlag
- Aukið samtal og samráð verður haft við íbúa og hagsmunaaðila og notenda- og hagsmunaráð
- Innkauparáð verði eflt með það að markmiði að auka fagmennsku í útboðsgerð og tryggja hagstæð innkaup á allri vöru og þjónustu fyrir bæjarfélagið
- Stjórnsýsla verður einfölduð með stafrænni umbreytingu til að bæta þjónustu og hraða afgreiðslu mála
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði
Fimm af sex listum fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 3 fulltrúa, S-listi Samfylkingarinnar fékk 2 fulltrúa, B-listi Framsóknarflokksins fékk 3 fulltrúa og C-listi Viðreisnar fékk 2 fulltrúa, M-listi Miðflokksins fékk 1 en A-listi Vinstrisins náði ekki inn manni. Kjörsókn var 64,2% en á kjörskrá voru 24.593.