Nýtnivika alla næstu viku. Sóun er ekki lengur í tísku!

Fréttir

Dagana 19.-27. nóvember 2022 stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið vikunnar og átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs. Þema ársins í ár er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu Sóun er ekki lengur í tísku! Leggjum okkar að mörkum við að skapa hringrásarhagkerfi textíls í samfélaginu.

Drögum úr óþarfa neyslu, nýtum hluti betur og drögum úr myndun úrgangs

Dagana 19.-27. nóvember 2022 stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið vikunnar og átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs. Þema ársins í ár er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu Sóun er ekki lengur í tísku! Textíliðnaðurinn er einn sá umfangsmesti í heimi og honum fylgir gríðarleg efnanotkun, ferskvatnsmengun og losun gróðurhúsalofttegunda svo það skiptir miklu að draga úr sóun textíls.

Leggjum okkar af mörkum til að skapa hringrásarhagkerfi textíls í samfélaginu

Í tilefni Nýtnivikunnar eru sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, skólar og almenningur hvött til þess að fræðast um umhverfisáhrif textíls og leggja sitt af mörkum til að skapa hringrásarhagkerfi textíls í samfélaginu. Til að mynda með því að setja upp fataskiptimarkað í skólanum, með vinahópnum og á vinnustaðnum eða gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, halda viðgerðarkaffi, fyrirlestra eða hvað eina sem styður við minni sóun.

Öll þau sem standa fyrir viðburðum eða öðru tengdu nýtnivikunni í ár eru hvött til að deila því með aðstandendum verkefnisins á Facebook síðu Nýtnivikunnar með því að senda þeim skilaboð. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið samangegnsoun@samangegsoun.is. Þátttakendur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að taka myndir og merkja færslurnar með: #samangegnsoun #nytnivikan #ewwr2022

Umhverfisstofnun heldur úti verkefninu Saman gegn sóun og á Facebook, Instagram og heimasíðu verkefnisins má finna upplýsingar um umhverfis- og samfélagsleg áhrif textíliðnaðarins og lausnir við þeim vanda sem iðnaðurinn stendur frammi fyrir.

Ábendingagátt