Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opni leikvöllurinn við Spóaás hefur sjaldan ef nokkurn tímann litið betur út. Þessi leikvöllur er meðal þeirra sem fá upplyftingu í ár. Allt að fimm vellir af 70 opnum völlum eru endurnýjaðir ár hvert.
Opni leikvöllurinn við Spóaás er glæsilegur eftir að hafa verið endurgerður nú í sumar. Nýtt undirlag er nú komið undir glæný tækin, tröppur endurunnar og misfellur í hellum lagaðar.
Timburpallur var undir leiktækjum áður. Hann var rifinn og gömlu tækin tekin fyrir ný, enda komin á tíma. Sandkassi var fjarlægður. Bíða þurfti færis til að líma nýja undirlagið á, gervigrasið, en undir því er dempun sem mildar höggið detti börnin.
70 opnir leikvellir eru í Hafnarfjarðarbæ. Starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar fara yfir þá árlega, meta ástandið og endurnýja með aðstoð verktaka. Ár hvert er að meðaltali 3-5 leikvellir endurgerðir og aðrir lagaðir. Löggild endurskoðun á þeim öllum er gerð og lagað það sem aflaga hefur farið. Þá eru leikskólalóðir og grunnskólalóðir einnig teknar út.
Næsti opni leikvöllur sem tekur stakkaskiptum er milli Einihlíðar og Bjarmahlíðar; völlur sem komin er á tíma. Búið er að kaupa ný tæki og byrjað á honum í næstu viku.
Fleiri opnir leikvellir verða sem nýir eftir sumarið. Þegar verki lýkur við Einihlíð er stefnt á að endurgera opna leikvöllinn við Hörðuvelli. Þar verður perlumöl undir leiktækjum fjarlægð fyrir gervigras. Þá er lítill opinn leikvöllur við Álfaberg á dagskrá í haust.
Við hvetjum íbúa til að kynna sér fjölbreytta leik- og sparkvelli á kortavef bæjarins. Það getur verið góð skemmtun fyrir fjölskylduna alla að prófa mismunandi velli og það milli hverfa.
Já, þeir bíða eftir þér opnu leikvellirnir!
Hátt í fjörutíu frá tuttugu skólum sátu Build-kynningarfund um nýtt námsefni sem haldið var hjá Hafnarfjarðarbæ á dögunum. Píeta samtökin…
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands, boðar til vinnustöðvunar (verkfalls) félagsmanna sem starfa í Áslandsskóla. Vinnustöðvunin nær…
GETA – hjálparsamtök safna nú fatnaði og hlutum og hvetja Hafnfirðinga til að skoða hvað leynist í sínum fórum og…
Hafnarfjarðarbær hefur samið við Golfklúbbinn Keili um slátt og umhirðu á fótboltagrasvöllunum hjá FH, Haukum og í Hamranesi. Sérfræðiþekking Keilismanna…
Hraunvallaskóli skein á vinnustofu sem haldin var í Braga í Portúgal fyrr í mánuðinum, raunar svo að nú vilja 100…
Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Ratleik Hafnarfjarðar sem er samvinna Hönnunarhússins og heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Guðni Gíslason ritstjóri Fjarðafrétta leggur…
Vetrarfrí er í grunnskólum, tónlistarskóla og að hluta til í leikskólum Hafnarfjarðar með tilkomu skráningardaga fimmtudaginn 24. október og föstudaginn…
Bóka- og bíóhátíð barnanna 2024 hefst í dag en hún er menningarhátíð fyrir börn í Hafnarfirði. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri setti…
Hafnarfjörður er baðaður í bleikum ljósum og ljóma þessa dagana. Tilgangurinn er afar bleikur og tileinkaður Krabbameinsfélaginu og baráttunni gegn…
Foreldrar leikskóladrengs sem styttu veru hans í leikskólanum um klukkustund á dag lækkuðu greiðsluna fyrir um tæpar 15.500 krónur á…