Setbergsskóli tvöfaldur meistari

Fréttir

Nemendur í Setbergsskóla hafa á undanförnum vikum náð frábærum árangri í spurningakeppnum grunnskóla og tryggt sér tvo glæsilega sigra á skömmum tíma. Lið skólans sigraði fyrst í spurningakeppninni Veistu svarið? í Hafnarfirði og fylgdi þeim árangri svo eftir með sigri í Spurningakeppni grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu.

Tveir glæsilegir sigrar í spurningarkeppnum á skömmum tíma

Nemendur í Setbergsskóla hafa á undanförnum vikum náð frábærum árangri í spurningakeppnum grunnskóla og tryggt sér tvo glæsilega sigra á skömmum tíma. Lið skólans sigraði fyrst í spurningakeppninni Veistu svarið? í Hafnarfirði og fylgdi þeim árangri svo eftir með sigri í Spurningakeppni grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu.

Setbergsskóli og Lágafellsskóli mættust í úrslitaviðureign  

Í Veistu svarið? áttust Setbergsskóli og Víðistaðaskóli við í æsispennandi úrslitum þar sem úrslitin réðust með einu stigi. Að lokum hafði Setbergsskóli betur, 17–16, og varði þar með titil sinn frá árinu áður. Þann 9. apríl sl. tók lið Setbergsskóla svo þátt í undanúrslitum Spurningakeppni grunnskólanna á höfuðborgarsvæðinu sem fram fóru í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar kepptu fjögur lið sem unnið höfðu sína riðla í undankeppninni: Dalskóli, Lágafellsskóli, Laugalækjarskóli og Setbergsskóli.

Setbergsskóli og Lágafellsskóli sigruðu í undanúrslitum og mættust síðan í úrslitaviðureign sem reyndist afar spennandi allt fram á síðustu mínútu. Þar stóð lið Setbergsskóla uppi sem sigurvegari og hlaut bæði eignarbikar og farandbikar að launum.

Mikil þekking, samvinna og keppnisandi

Í sigurliðinu voru þau Hrafnkell Hrafnsson, Karólína Bríet Arelakis og Reynir Örn Sigrúnarson, sem skipuðu einnig lið skólans í Veistu svarið? Karólína Bríet var jafnframt eina stúlkan í öllum keppnishópnum þetta árið. Þjálfun, undirbúningur og leiðsögn var í höndum Margrétar Guðbrandsdóttur sem lagt hefur hug og hjarta í verkefnið. Árangurinn er til marks um mikla þekkingu, samvinnu og keppnisanda nemenda Setbergsskóla og er skólasamfélaginu öllu til mikils sóma.

Ábendingagátt