Sex styrkir úr Húsverndarsjóði

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta og námu þeir tveimur milljónum króna. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði.

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbær veitti á dögunum sex styrki úr Húsvendarsjóði við hátíðlegt tilefni í Hafnarborg. Styrkirnir eru til viðhalds og endurbóta. Samtals námu þeir tveimur milljónum króna. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og eru styrkirnir veittir til viðhalds og endurbóta.

Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir að styrkja eftirfarandi verkefni:

  • Árni Stefán Árnason, Austurgata 10, 400.000 kr.
  • Kristinn Kristinsson, Merkurgata 2, 300.000 kr.
  • Eiríkur Gauti Kristjánsson, Strandgata 49, 100.000 kr.
  • Fríkirkjusöfnuðurinn, Linnetstígur 6, 500.000 kr.
  • Vilmar Breki Jóhannsson, Brattakinn 5, 500.000 kr.
  • María Birna Jónsdóttir, Norðurbraut 27b, 200.000 kr.

Húsverndarsjóður – styrkir til viðhalds og endurbóta eldri húsa

Hafnarfjarðarbær auglýsti eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar og rann umsóknarfresturinn út þann 28. febrúar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa í Hafnarfirði og veitir styrki til viðhalds og endurbóta. Sjóðnum er einnig heimilt að veita styrki til viðhalds og verndunar annarra mannvirkja í bænum sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og sjónarmið húsverndar.

Mat á umsóknum

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar úthlutar styrkjum úr húsverndarsjóði að fenginni umsögn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, til dæmis vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildi hennar fyrir varðveislu byggingararfs Hafnarfjarðar. Áhersla er lögð á að styrkja framkvæmdir sem færa ytra byrði húsa svo sem glugga og klæðningu til upprunalegs horfs.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í reglugerð húsverndarsjóðs Hafnarfjarðar

Innilega til hamingju öll með styrkinn sem fegrar og bætir samfélagið okkar!

Ábendingagátt