Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þakkir til allra. Hátt í sjötíu starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar settu upp hanska, tóku sér kúst og poka í hönd og vörðu góðum tíma við hreinsunarstörf. Þetta framtak er liður í hreinsunarátaki Hafnarfjarðarbæjar dagana 2. – 16. maí.
Hátt í sjötíu starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar settu upp hanska, tóku sér kúst og poka í hönd og vörðu góðum tíma við hreinsunarstörf í miðbæ Hafnarfjarðar, við Reykjavíkurveg, Strandstíg og tónlistarskóla í vikunni. Stór hópur var einnig við hreinsunarstörf á Völlum á svæði við og kringum Norðurhellu. Þetta framtak er liður í hreinsunarátaki Hafnarfjarðarbæjar dagana 2. – 16. maí þar sem allir íbúar, nemendur allra skólastiga og starfsmenn fyrirtækja og stofnana hafa verið hvattir til að taka virkan þátt.
„Skúra burtu skítinn, svo einhver vilji lít’inn“
Árvisst hreinsunarátak í Hafnarfirði hefur staðið yfir dagana 2. – 16. maí. Þessa daga hafa bæjarstarfsmenn verið á fullu við hreinsun víðsvegar um Hafnarfjörð og samhliða skorað á íbúa og starfsmenn fyrirtækja og stofnana í Firðinum að taka virkan þátt með því að huga að hreinsun innan sinna lóðarmarka og í sínu nánasta umhverfi. Þannig hafa leikskólar og grunnskólar í Hafnarfirði skipulagt sína eigin hreinsunardaga þar sem allir nemendur og kennarar hafa fengið það hlutverk að hreinsa ákveðin svæði bæði innan lóðar og helsta nærumhverfi. Í gær tóku skapandi listamenn í Íshúsi Hafnafjarðar og við Fornubúðir á Flensborgarhöfn sig til og hreinsuðu til í fjöru og við bryggju. Hreinsunarafrekum var svo fagnað í hollustusúpu í boði Hafnarfjarðarbæjar þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar tóku vel á móti gestum og gangandi við Ásvallalaug. Í auknu mæli eru innlendir og erlendir ferðamenn farnir að sækja bæinn heim og mun umferð þeirra aukast á komandi misserum. Sjö nýjar verslanir hafa opnað í Firði verslunarmiðstöð á síðustu vikum auk þess sem fjöldi nýrra og fjölbreyttra veitingastaða og kaffihúsa hefur verið og er að líta dagsins ljós þessa dagana. Það stefnir allt í lifandi og skemmtilegt sumar í Hafnarfirði og er það ósk allra að hreinn og fínn Fjörður mæti íbúum og gestum.
Bæjarstjóri og starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar senda íbúum, nemendum á öllum skólastigum og starfsmönnum fyrirtækja og stofnana í bænum þakklætiskveðjur fyrir framlag í þágu hreinsunarmála í Hafnarfirði. Hugurinn ber okkur hálfa leið en samvinnan alla.
TAKK!
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…