Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Alls 154 íbúðir við Áshamar 12-26 fengu Svansvottun á dögunum. Aldrei hefur stærra verk verið Svansvottað á einu bretti. Hvergi eru fleiri Svansvottaðar íbúðir en í Hafnarfirði.
Hafnarfjörður leiðandi í Svansvottun
Langstærsta verkefnið sem hefur verið Svansvottað hingað til er í Hafnarfirði. Byggingarverktakinn Eykt fékk sitt fyrsta Svansleyfi fyrir fjölbýlishús að Áshamri 12-26 í Hafnarfirði á dögunum. Um er að ræða sex fjölbýlishús, samtals um 18.000 m2 og 154 íbúðir.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri óskar þeim til hamingju. „Við erum ákaflega stolt af því að Hafnarfjörður er í fararbroddi þegar kemur að umhverfisvænum byggingum. Þetta snýst ekki bara um hús heldur um betra samfélag fyrir íbúa nú og til framtíðar.“
Samkvæmt tölum Umhverfis- og orkustofnunar eru hvergi fleiri íbúðir Svansvottaðar og í Hafnarfirði. Ríflega helmingur allra Svansvottunarverkefna eru einmitt hér í bænum. Hafnarfjarðarbær hefur stutt við þessa þróun að fyrirtæki kjósi að byggja umhverfisvænt með afslætti af lóðum og gatnagerðargjöldum fyrir umhverfisvottaðar byggingarframkvæmdir.
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri Svansins, afhenti viðurkenninguna á dögunum. Haft er eftir henni á vef Svansins að verkefnið sé sérstaklega mikilvægt skref fyrir íslenskan fasteignamarkað.
„Verkefnið bætir verulega við úrvalið af Svansvottuðum íbúðum,“ segir hún. Nú þegar er fjöldi íbúða kominn á markað, bæði íbúðir sem hafi hlotið vottun en einnig íbúðir sem eru enn í Svansvottunarferli. „Og eru því vonir um að eftirspurn eftir slíkum íbúðum fari vaxandi.“
Fjölbýlishúsið að Ásharmi er ekki það eina sem Eykt byggir umhverfisvænt. Byggingarverktakinn kemur einnig að fleiri Svansvottuðum framkvæmdum sem aðalverktaki. Samkvæmt Svaninum styrkir hann þannig stöðu sína sem einn af leiðandi aðilum í Svansvottuðum byggingum hér á landi.
„Við hjá Eykt erum ótrúlega stolt af því að hafa hlotið okkar fyrstu Svansvottun fyrir fjölbýlishús að Áshamri 12–26 í Hafnarfirði,“ segir Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar. Viðurkenningin marki mikilvægan áfanga í sögu Eyktar og staðfesti leiðarljós þess um að byggja með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi.
Hann bendir á að Eykt hafi nýlokið úttekt á samþættu stjórnunarkerfi sínu með endurvottun á ISO 9001 gæðastaðlinum. Einnig viðhaldsúttekt á ISO 14001 umhverfismálum og ISO 45001 öryggismálum. Úttektin hafi verið framkvæmd af fulltrúum frá BSI.
„Við erum afar þakklát öllu okkar öfluga starfsfólki og samstarfsaðilum sem komu að þessu verkefni. Árangurinn sýnir hverju við getum áorkað saman þegar metnaður og gæði eru höfð að leiðarljósi.“
Gerðar eru strangar kröfur sem tryggja bæði umhverfisábyrgð og gæði með Svansvottun, meðal annars:
Fyrir kaupendur eru Svansvottun íbúða því gæðastimpill, sem staðfestir að byggingin hafi verið hönnuð og byggð með langtímahagsmuni íbúa og umhverfisins að leiðarljósi.
Svansvottað húsnæði er því ekki aðeins umhverfisvænt val. Það er gæðastimpill fyrir kaupendur sem tryggir að íbúðirnar séu hannaðar með langtímahagsmuni íbúa og umhverfisins í huga.
Til hamingju Eykt og Hafnfirðingar!
Grunnurinn Hamranesskóla er risinn. Hverfið er að taka á sig fulla mynd eins og myndir ljósmyndarans Ragnars Th. Sigurðssonar fyrir…
Nú má panta samtal við Valdimar Víðisson bæjarstjóra á netinu. Hnappur er kominn á forsíðu vefjar bæjarins.
Lokun gatna á opnunartíma Jólaþorpsins. Í gildi frá 14.nóvember kl.17:00 til 23.desember kl.20:00.
Vegna flugeldasýningar verður Fjarðargata lokuð föstudaginn 21.nóvember milli kl.19:15-19:30.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri tók á móti hafnfirska Neyðarkallinum í dag. Hafnarfjarðarbær styrkir Björgunarsveit Hafnarfjarðar með kaupum á Neyðarkallinum.
Tillaga að fjárhagsáætlun 2026 var lögð fyrir bæjarstjórn Hafnarfjarðar til fyrri umræðu í dag, miðvikudaginn 5. nóvember 2025.
Já, það verður eitthvað gott í pokahorninu og búast má við að allir sem þangað mæti fái eitthvað fallegt á…
Hafnfirskir sundgarpar hafa synt lengst í landsátakinu Syndum tvö ár í röð. Átakið var sett í 5. sinn í gær.
Spennan magnast. Jólaþorpið rís þessa dagana og opnar 14. nóvember. „Hvert einasta ár finnum við nýjar leiðir til að gera…
UPPFÆRT: Hrekkjavakan er á morgun! Veðrið gæti þó spillt fyrir gleðinni. Úrhelli í kortunum. Við hvetjum ykkur til að fylgjast…