Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina – úrræði fyrir fatlað fólk

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 28.09.2026

Umsóknarfrestur til: 05.10.2026

Tengiliður: Þórdís Rúriksdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% framtíðarstarf með fjölbreyttum verkefnum. Hefðbundin dagvinna frá 8- 16 eða 8:30-16:30.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Veitir stuðning og fylgd í vinnu og virkni
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sveigjanleiki í starfi

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf