Tómstundaleiðbeinandi – Setrið, Setbergsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 07.08.2026

Umsóknarfrestur til: 21.08.2026

Félagsmiðstöðin Setrið býður börnum og unglingum í 5. -10.bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og anda forvarna. Setrið er vettvangur fyrir opið félagsstarf og skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingum.

Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningu við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birkir Sigurjónsson, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, í gegnum netfangið birkirs@setbergsskoli.is.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf