Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.04.2024

Umsóknarfrestur til: 29.04.2024

Tengiliður: Valdimar Víðisson

Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

·       Annast almenna umsjónarkennslu á miðstigi í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra

·       Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

·       Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

·       Vinna samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

·       Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)

·       Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu.

·       Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.

·       Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

·       Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

·       Stundvísi og samviskusemi

·       Mjög góð íslenskukunnátta

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl nk.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

 

Önnur störf