Forfallakennari – Víðistaðaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 13.08.2026

Umsóknarfrestur til: 27.08.2026

Tengiliður: arnor@vidistadaskoli.is

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í afleysingar 

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 520. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni: 

  • Annast kennslu á ýmsum stigum í afleysingu  
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila 
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans  
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Haldgóð þekking á kennslufræði í íslensku
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum. 
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. 
  • Stundvísi og samviskusemi 
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnór Heiðarsson, skólastjóri, arnor@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is 

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2026.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Önnur störf