Aðstoðarleikskólastjóri – Leikskólinn Hvammur
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 19.08.2026
Umsóknarfrestur til: 02.09.2026
Tengiliður: gudrunedda@hafnarfjordur.is
Hvammur auglýsir starf aðstoðarleikskólastjóra
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, vilja til að þróa leikskólastarf, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi sé faglegur leiðtogi, lausnamiðaður og jákvæður. Hafi metnað til að byggja upp góðan skólabrag og skapandi leikskólaskólastarf sem er í stöðugri þróun í samvinnu við alla aðila innan skólasamfélagsins. Um er að ræða 100% starfshlutfall en hlutfall stjórnunar aðstoðarleikskólastjóra er 50%.
Hvammur er sex deilda leikskóli í suðurbæ Hafnarfjarðar. Gildi skólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta og endurspeglast þau í öllu starfi leikskólans. Í Hvammi er starfað í anda Hjallastefnunnar og deildar leikskólans eru aldurs- og kynjaskiptar. Í leikskólanum er unnið með opinn og skapandi efnivið sem er eins á öllum deildum en þannig er tryggt að öll börn hafi jafnan aðgang að rými og leikefni. Í Hvammi er unnið með uppbyggingarstefnuna Uppeldi til ábyrgðar þar sem ýtt er undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn. Auk þess styrkir hugmyndafræðin starfsfólk í að samræma aðferðir í samskiptum og agamálumm og að efla vináttu.
Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á, ásamt leikskólastjóra, að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og staðgengill hans
- Sinnir, ásamt leikskólastjóra, skipulagi skólastarfsins dag frá degi
- Leiðbeinir inn í fagstarf hverrar deildar og sinnir snemmbærum stuðningi við nemendur með ólíkan menningarlegan bakgrunn og tungumál
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi á leikskóla og leikskólakennslu skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og/eða kennslufræða kostur
- Stjórnunarreynsla kostur
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta, C1, skv, tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi
- Góð tölvukunnátta
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2026.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, leikskólastjóri gudrunedda@hafnarfjordur.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.