Stofa 13 – þar sem nemendur blómstra á eigin forsendum
Í Stofu 13 í Öldutúnsskóla fá börn á yngsta- og miðstigi með einhverfugreiningu tækifæri til náms og samveru í umhverfi sem er sérstaklega aðlagað að þeirra þörfum. Þar er lögð áhersla á ró, fyrirsjáanleika og að draga úr því skynálagi sem getur fylgt hefðbundnum kennslustofum. Á móti þeim tekur sérkennarinn Hugborg Pálmína Erlendsdóttir sem hefur á þessu skólaári þróað og mótað rýmið með þarfir barnanna að leiðarljósi.
Umhverfið aðlagað að þörfum barna
Í Stofu 13 í Öldutúnsskóla fá börn á yngsta- og miðstigi með einhverfugreiningu tækifæri til náms og samveru í umhverfi sem er sérstaklega aðlagað að þeirra þörfum. Þar er lögð áhersla á ró, fyrirsjáanleika og að draga úr því skynálagi sem getur fylgt hefðbundnum kennslustofum. Á móti þeim tekur sérkennarinn Hugborg Pálmína Erlendsdóttir sem hefur á þessu skólaári þróað og mótað rýmið með þarfir barnanna að leiðarljósi. Verkefnið Stofa 13 var eitt þeirra verkefna sem hlutu styrk úr Menntasjóði Hafnarfjarðar í vor.
„Hugmyndin sem kom frá deildarstjóra sérkennslu síðasta vor var að ég fengi stofu til að skapa úrræði fyrir börn með þessar þarfir. Ég er sérkennari og mér finnst þessi börn svo frábær, klár og skemmtileg. Ég er því afar þakklát stjórnendum Öldutúnsskóla fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt með því að fá að þróa þetta verkefni og móta það frá grunni. Það er alls ekki sjálfgefið,“ segir Hugborg.
Hugsunin að baki Stofu 13 er að skapa aðstæður þar sem börn með fjölbreyttar þarfir geti notið sín í litlum hópi í umhverfi sem er skipulagt með þeirra velferð og námsaðferðir í huga. Þar gefst þeim einnig kostur á að taka hlé frá álagi dagsins þegar þörf krefur. „Börn læra á mjög ólíkan hátt og við höfum reynt að mæta því með því að aðlaga námsefni að þeirra þörfum. Ég útbý til dæmis áhugasviðsbækur fyrir þau og félagsfærnisögur sem eru mikilvægar fyrir mörg þessara barna til að takast á við ýmsar áskoranir.“ Með Hugborgu í Stofu 13 starfar jafnframt skóla- og frístundaliði sem tekur þátt í að skapa öruggt, rólegt og styðjandi námsumhverfi fyrir nemendur. Það er afar mikilvægt, þar sem margir nemendur þurfa mikinn stuðning og einstaklingsaðstoð í námi og daglegu skólastarfi.
Fimmtán börn njóta úrræðisins
Börnin sem sækja Stofu 13 eru þar misjafnlega mikið, allt frá því að verja þar stórum hluta skóladagsins yfir í nokkrar kennslustundir á viku. Alls njóta um 15 börn þjónustunnar frá þriðja upp í sjöunda bekk. „Þar sem þetta er ekki skilgreind sérdeild né fjármögnuð sem slík köllum við þetta úrræði einfaldlega Stofu 13. Þetta er fyrsta starfsárið og þörfin er mjög mikil.“ Um sé að ræða börn sem hafi oft átt erfitt með að vera inni í stórum bekkjum og fundið fyrir vanlíðan eða kvíða gagnvart skólasókn. „Núna höfum við náð betur utan um þau og hér eiga þau ákveðið athvarf. Sum fara einnig inn í sína umsjónarbekki en önnur treysta sér ekki til þess að fullu. Við reynum að mæta hverju barni þar sem það er statt og vinnum náið með umsjónarkennurum.“
Hugborg segir jafnframt að börnin nái vel saman í stofunni og að þar hafi myndast dýrmæt vinatengsl. „Hér hafa skapast falleg tengsl og vinátta á milli barna sem eiga sameiginleg áhugasvið og það er stórkostlegt að sjá. Til að styðja einnig við félagsleg tengsl í umsjónarbekkjum höfum við leyft börnunum að bjóða vinum með sér hingað til að læra og leika saman. Það hefur gefist mjög vel.“
Í vinnu með nemendum með einhverfu telur hún mikilvægt að byggja á samþættri og einstaklingsmiðaðri nálgun. „Á Íslandi eru TEACCH-aðferðafræðin, sjónrænn stuðningur og skipulagt námsumhverfi mjög algeng í sérkennslu, enda styðja þær vel við fyrirsjáanleika og sjálfstæði í námi. Ég hef einnig mikinn áhuga á DIR/Floortime-nálguninni, sem leggur meiri áherslu á samskipti, tengslamyndun og tilfinningaþroska. Að mínu mati vinna þessar nálganir mjög vel saman. TEACCH skapar skýran og öruggan ramma utan um námið, á meðan DIR/Floortime styður við félagsfærni, þátttöku og innri hvata nemenda. Þegar þessar aðferðir eru samþættar skapast heildstætt námsumhverfi sem tekur bæði mið af námslegum og félags-tilfinningalegum þörfum nemenda.“
„Traust og skilvirkni er þjálfun“
Styrkurinn úr Menntasjóði Hafnarfjarðar mun nýtast vel að sögn Hugborgar. Hún hefur meðal annars hug á að nýta hann til starfsþróunar og fræðslu. „Mig langar meðal annars að nýta styrkinn til starfsþróunar og fræðslu fyrir það starfsfólk sem kemur að starfi í Stofu 13, með áherslu á einhverfu og TEACCH-aðferðafræðina. Einnig hefði ég áhuga á að fá fyrirlesara í haust sem gæti fjallað um árangursríka samvinnu starfsfólks innan skólans, með það að markmiði að efla samstarf milli Stofu 13 og umsjónarkennara nemenda.“ Þá segir hún mikilvægt að allt starfsfólk sem kemur að börnunum vinni saman að sameiginlegum markmiðum og samræmdum stuðningi. „Við sem störfum hér erum ólík og með mismunandi bakgrunn, en þurfum að vinna vel saman og stefna í sömu átt. Traust og skilvirkt samstarf byggist upp með sameiginlegri þjálfun, vinnu og skýrum markmiðum.“ Þá sé líka ýmislegt sem vanti enn í rýmið, svo sem húsgögn, námsgögn og annað efni sem geti nýst börnunum vel.
Að lokum segir Hugborg að mikilvægast af öllu sé að börnunum líði vel í skólanum, upplifi öryggi og fái tækifæri til að blómstra á eigin forsendum í leik og námi.
Síðustu vikur og á næstu vikum munu viðtöl við styrkhafa úr Menntasjóði Hafnarfjarðar vera birt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar. Þannig gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fá dýpri innsýn í frábær verkefni og skapandi skóla- og frístundastarf.