Stóri Plokkdagurinn 2025 verður á sunnudag – Taktu þátt!

Fréttir

Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 27. apríl.

Svo er tilvalið að plokka alla daga ársins!

Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 27. apríl. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í Ráðhúsi og á Norðurhellu tók forskot á plokksæluna og plokkaði í nærumhverfi sinna starfsstöðva.

Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til þátttöku

Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu.

Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.

Af hverju er það að plokka frábær hugmynd?

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Einstaklingsmiðað
  • Hver á sínum hraða
  • Hver ræður sínum tíma
  • Frábært fyrir umhverfið
  • Frábært fyrir líkama og sál – ákveðin núvitund og núllstilling
  • Fegrar nærsamfélagið
  • Öðrum góð fyrirmynd

Forsetinn setur Stóra plokkdaginn í ár

Forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir setur Stóra Plokkdaginn sunnudaginn kemur 27. apríl. Þessi ruslatýnsludagur hefur fest sig í sessi um land allt. Setning Stóra Plokkdagsins verður við Sorpu í Breiðholti kl. 10:00. Forsetanum til halds og trausts verður forseti Rótarý hreyfingarinnar Jón Karl Ólafsson. Félagar úr Rótarý hreyfingunni og meðlimir í Plokk á Íslandi verða svo einnig með þeim. Sérstakur gestur setningarinnar verður Elín Birna plokkari frá Eyrarbakka ásamt fleirum í hennar deild sem hjálpa nýliðum af stað í sportinu.

Fyrsti Stóri plokkdagurinn var haldinn árið 2018 en síðan hefur þessum hátíðisdegi umhverfis og snyrtimennsku vaxið ásmegin við hvert ár sem líður.

Ábendingagátt