Sund og menning um páskana 2023

Fréttir

Grunnskólar Hafnarfjarðar fara í páskafrí eftir föstudaginn 31. mars. Hefðbundið skólastarf hefst á ný þriðjudaginn 11.apríl. Leikskólar Hafnarfjarðar verða opnir virka daga í dymbilvikunni utan rauðra daga frá og með 6. apríl til og með 10. apríl. Það sama gildir um þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og þjónustumiðstöð Norðurhellu 2. Opnunartímar í sundlaugum og á söfnum eru eftirfarandi. Njótið páskahátíðarinnar!

Gleðilega páska kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar!

Grunnskólar Hafnarfjarðar fara í páskafrí eftir föstudaginn 31. mars. Hefðbundið skólastarf hefst á ný þriðjudaginn 11.apríl. Leikskólar Hafnarfjarðar verða opnir virka daga í dymbilvikunni utan rauðra daga. Þeir verða lokaðir frá og með 6. apríl til og með 10. apríl. Það sama gildir um þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og þjónustumiðstöð Norðurhellu 2. Heilsubærinn Hafnarfjörður er að mörgu leyti einstakur bær, ekki síst fyrir lifandi og skemmtilegan miðbæ, heillandi hafnarsvæði og gott aðgengi að fjölbreyttum og fallegum náttúruperlum. Margir áhugaverðir staðir eru í göngufæri frá miðbænum, til dæmis Hellisgerði, Víðistaðatún, Lækurinn og Hamarinn auk þess sem Hafnfirðingar búa við þann munað að vera með Helgafellið, Hvaleyrarvatn, Ásfjallið og Ástjörn í bakgarðinum hjá sér.

Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina.

Afgreiðslutímar í sundlaugum Hafnarfjarðar verður eftirfarandi yfir páskana:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Afgreiðslutími Hafnarborgar verður eftirfarandi yfir páskana:

Skírdagur 6. apríl: Opið kl. 12-17

Föstudagurinn langi 7. apríl: Lokað

Laugardag 8. apríl: Opið kl. 12-17

Páskadagur 9. apríl: Lokað

Annar í páskum 10. apríl: Opið kl. 12-17

Afgreiðslutími Bókasafns Hafnarfjarðar verður eftirfarandi yfir páskana:

Skírdagur 6. apríl: Lokað

Föstudagurinn langi 7. apríl: Lokað

Laugardag 8. apríl: Opið kl. 11-15

Páskadagur 9. apríl: Lokað

Annar í páskum 10. apríl: Lokað

Afgreiðslutími Byggðasafns Hafnarfjarðar verður eftirfarandi yfir páskana:

Skírdagur 6. apríl: Lokað

Föstudagurinn langi 7. apríl: Lokað

Laugardag 8. apríl: Opið kl. 11-17 (Pakkhúsið og Sívertsenhúsið)

Páskadagur 9. apríl: Lokað

Annar í páskum 10. apríl: Lokað

Ábendingagátt