Sýning um stjörnu okkar Hafnfirðinga – sjálfan Björgvin
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að hefja undirbúning að sýningu um ævi og glæsilegan feril Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar og stoltan son bæjarins. Dagurinn er táknrænn, Björgvin hefði orðið 75 ára í dag.
Sýning um ævi og glæsilegan feril Björgvin Halldórsson
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að hefja undirbúning að sýningu um ævi og glæsilegan feril Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar og stoltan son bæjarins. Dagurinn er táknrænn, Björgvin hefði orðið 75 ára í dag.
Djúp spor í íslensku menningarlífi
Bærinn vill með sýningunni heiðra minningu manns sem markaði djúp spor í íslensku menningarlífi og átti einstakt samband við Hafnfirðinga.
Björgvin var fæddur og uppalinn í Hafnarfirði, alla tíð stoltur af uppruna sínum og ávallt nátengdur bænum í gegnum tónlistina, tónleika í Bæjarbíó og fjölmörg menningarverkefni. Hann var útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 og varð fyrstur til að hljóta stjörnu við Bæjarbíó – viðurkenningu sem endurspeglar þá hlýju og virðingu sem bæjarbúar báru til hans. Sýningin verður unnin í nánu samstarfi við fjölskyldu og vini Björgvins, Bæjarbíó, Byggðasafn Hafnarfjarðar og aðra fagaðila. Hugmyndin að verkefninu á sér rætur í samtölum sem þegar höfðu átt sér stað við Björgvin sjálfan og hann sýndi mikinn áhuga.

Fulltrúar bæjarráðs f.v. Jón Ingi Hákonarson, Valdimar Víðisson, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Orri Björnsson, Margrét Vala Marteinsdóttir og Kristinn Andersen.
„Björgvin Halldórsson var ekki aðeins stórkostlegur listamaður heldur einnig einstakur Hafnfirðingur sem gaf bænum sínum ómetanlega gleði, stolt og minningar. Með þessari sýningu viljum við varðveita sögu hans og gera komandi kynslóðum kleift að kynnast þeim áhrifum sem hann hafði á menningu okkar og samfélag,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs.
Með þessari ákvörðun vill bæjarráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær sýna í verki þakklæti sitt fyrir ómetanlegt framlag Björgvins til tónlistar, menningar og bæjarlífsins alls. Hans er og verður sárt saknað, en arfleifð hans mun lifa áfram í hjörtum fólks og sögu bæjarins.