Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar hefur valið Te & Kaffi fyrirtæki ársins í Hafnarfirði. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & kaffi, tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í gær, þann 9. apríl. Fimm voru tilnefnd og þau fjögur sem fengu tilnefningu voru Betri Stofan, H-Berg, Litla hönnunarbúðin og Sorgarmiðstöð.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar hefur valið Te & Kaffi fyrirtæki ársins í Hafnarfirði. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & kaffi, tók við viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Hafnarborg í gær, þann 9. apríl. Markaðsstofan heiðrar fyrirtæki sem hafa skarað fram úr á árinu fyrir að efla atvinnulíf í Hafnarfirði og fyrir að hafa tekið þátt í að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi með starfsemi sinni og athöfnum.
Jóhannes Egilsson, varaformaður stjórnar Markaðsstofu Hafnarfjarðar, flutti ávarp og bauð gesti velkomna. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðaræjar, afhenti viðurkenninguna. Hinn óviðjafnanlegi Frímann Gunnarsson tróð upp og fór með gamanmál að eigin hætti.
Te & Kaffi er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1984. Vörumerkið hefur þróast með sífelldum nýjungum og vöruþróun auk þess sem fyrirtækið rekur fjölda kaffihúsa. Te & Kaffi leggur mikið upp úr umhverfismálum með sjálfbærni að leiðarljósi.
„Strangt gæðaeftirlit er á öllu vinnsluferli kaffibaunanna og val á réttu hráefni. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum upp á besta kaffi sem völ er á, á sem umhverfisvænastan hátt, “ segir í tilkynningu Markaðsstofunnar. Undanfarin ár hafi fyrirtækið haldið loftlagsbókhald og fyrirtækið brugðist vel við því sem betur megi fara til að stuðla að aukinni sjálfbærni, meðal annars með umhverfisvænni orkugjafa og niðurbrjótanlegum umbúðum.
Fimm fyrirtæki voru tilnefnd að þessu sinni. Auk Te & Kaffi voru það Betri Stofan, H-Berg, Litla hönnunarbúðin og Sorgarmiðstöð. Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru fyrst afhent árið 2017 en þau verðlaun eru núna nefnd Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði.
Hlutverk og tilgangur Markaðsstofu Hafnarfjarðar er að efla samstarf atvinnulífs, bæjarfélagsins og annarra sem vilja stuðla að uppbyggingu innan Hafnarfjarðar með það að leiðarljósi að bæta ímynd Hafnarfjarðar og auka eftirspurn eftir hvers konar þjónustu og atvinnustarfsemi á svæðinu. Hlutverk markaðstofunnar er einnig að standa að fræðslu, efla tengslanet fyrirtækja í bænum og samstarfi þeirra á milli.
Fjöldi þeirra fyrirtækja sem eiga aðild að markaðsstofunni er sífellt að aukast og er starfsemin í sífelldri þróun til að koma á móts við óskir og þarfir fyrirtækja í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær óskar starfsfólki Te & Kaffi innilega til hamingju sem og allra hinna tilnefndu fyrirtækjanna.
Frisbígolffélag Hafnarfjarðar í samstarfið við Folfdiskar.is færði í gær Hafnarfjarðarbæ 13 frisbígolfskörfur og hundruð diska til að stunda frísbígolf innandyra…
Yfir 100 íbúðir og verslanir á jarðhæð verða við Reykjavíkurveg 60-62. Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu nýs Hrauns vestur og…
„Áttu erlendan vin eða erlendan nágranna sem er nýfluttur í bæinn?“ spyrja brúarsmiðir Hafnarfjarðarbæjar sem hjálpa foreldrum af erlendum uppruna…
Hafnarfjarðarbær hlaut í gær nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025. Bærinn hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun með leiðandi umbótastarfi…
Hvað gerir bæjarstjóri? spurðu elstu börnin í Hlíðarendaleikskóla þegar þau heimsóttu Valdimar Víðisson bæjarstjóra nú í morgun. Börnin komu með…
„Ég hvet því íbúa Hafnarfjarðar til þess að fara inn á heimasíðu UNICEF þar sem hægt er að sækja sér…
Aldrei hafa fleiri sótt um í Verkhernum og í ár. Verkherinn er atvinnuúrræði fyrir hafnfirsk ungmenni með skerta starfsgetu. Verkherinn…
Leikskólinn Hörðuvellir fagnaði 90 ára afmæli í dag, föstudag. Börnin sungu og stjórnendur rifjuðu upp söguna. „Leikskólinn Hörðuvellir hefur verið…
Fjöldi hafnfirskra fyrirtækja kynntu starfsemi sína á ráðstefnuni HITTUMST í Hafnarhúsinu í gær. Bæjarstjórinn kíkti við ásamt stjórum nágrannasveitarfélaganna.
Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta…