Teboð með Ungmennaráði Hafnarfjarðar
Í lok apríl bauð Ungmennaráð Hafnarfjarðar fulltrúum allra flokka sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði 2026 í teboð þar sem markmiðið var að ræða málefni ungs fólks. Meðal málefna voru skólamál, umhverfismál, heilbrigðismál og framtíð Hafnarfjarðar. Viðburðurinn var einstaklega vel heppnaður og fór vel á með frambjóðendum og fulltrúum ungmennaráðs.
Markmiðið að ræða málefni ungs fólks
Í lok apríl bauð Ungmennaráð Hafnarfjarðar fulltrúum allra flokka sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði 2026 í teboð þar sem markmiðið var að ræða málefni ungs fólks.
Skólamál, umhverfismál, heilbrigðismál og framtíð bæjarins
Allir sex flokkar sendu fulltrúa á staðinn og bauð ungmennaráðið upp á ljúffengar veitingar, vöfflur og með því. Ungmennaráðið tók saman þau umræðuefni sem hafa verið efst á baugi í starfi vetrarins og óskaði einnig, fyrir teboðið, eftir tillögum frá ungmennum í Hafnarfirði í gegnum netið. Fulltrúar ungmennaráðs stýrðu umræðum og sáu til þess að frambjóðendur færu á milli og fengju að tækifæri til að ræða um mismunandi málaflokka. Meðal málefna sem voru til umræðu voru skólamál, umhverfismál, heilbrigðismál og framtíð Hafnarfjarðar.
Takk fyrir góðan fund!
Viðburðurinn var einstaklega vel heppnaður og fór vel á með frambjóðendum og fulltrúum ungmennaráðs.
Ungmennaráð vill koma á framfæri þökkum til allra sem mættu og létu sig málefni ungs fólks varða.