Til hamingju með 118 ára afmælið
Hafnarfjarðarbær fagnar í dag, mánudaginn 1. júní 2026, 118 ára afmæli. 3. bekkingingar mættu í dag á afmælisdeginum á Thorsplan og sungu inn sumarið.
Hann á afmæli í dag, hann Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær fagnar í dag, mánudaginn 1. júní 2026, 118 ára afmæli. Sveitarfélagið fékk kaupstaðaréttindi þann 1. júní 1908. Bærinn hefur síðan þá þroskast og dafnað. Þann 1. júní 1908 bjuggu 1.469 manns í bænum. Nú í ársbyrjun 2026 búa í bænum rétt tæplega 32.398. Og afmælinu var fagnað á Thorsplani. Þar fór fram árlegur samsöngir 3. bekkinga nú í morgun undir dyggri stjórn Guðrúnar Árnýjar.
Njótum Hafnarfjarðar á afmælisdaginn og alla aðra daga!
Afmælisdaginn í ár ber upp á fallegum rólindis mánudegi. Við hvetjum Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til að njóta alls eða einhvers af því Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða í dag sem og flesta aðra daga; útivera, hreyfing, menning, verslun og veitingar.
Sumaropnun og ný þemasýning í Byggðasafni Hafnarfjarðar
Sumaropnun hefst á öllum söfnum Byggðasafns Hafnarfjarðar frá og með deginum í dag. Á föstudaginn var opnuð ný þemasýning í Pakkhúsi Byggðasafnsins og kallast hún Handboltabærinn Hafnarfjörður. Sýningin segir frá handboltalífinu í Hafnarfirði frá árinu 1925.
Tónlistin og bæjarlífið, Fyrsta menningar- og heilsuganga sumarsins
Boðið er upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Fyrsta gangan hefst á miðvikudag kl. 20 þann 3. júní. Göngurnar eru samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar.
Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu gönguna. Gengið verður um miðbæinn og Jónatan rifjar upp sterka tengingu tónlistar og bæjarlífsins. Fjallað verður um Friðrik Bjarnason, Vinaminni, unglingaböll, Skiphól, Skútuna, Hjarta Hafnarfjarðar og margt fleira. Gengið er frá Hafnarborg.
Nokkrar hugmyndir að skemmtun á 118 ára afmælisdaginn og aðra daga:
Á svona góðum rólegum degi er frábært að taka röltið með góðum vinum og fjölskyldu.