Verjum áramótunum SAMAN

Fréttir

Verjum áramótunum saman í faðmi fjölskyldunnar. Förum varlega með sprengjur og knúsum ungana okkar lengi og mikið þegar klukkan slær tólf á miðnætti!
Kveðjum gamla árið og tökum á móti þessu nýja SAMAN!

Síðasti dagur ársins 2022. Meiri matur – meiri gleði

Verjum áramótunum saman í faðmi fjölskyldunnar. Förum varlega með sprengjur og knúsum ungana okkar lengi og mikið þegar klukkan slær tólf á miðnætti!
Kveðjum gamla árið og tökum á móti þessu nýja SAMAN! Gerum árið 2022 að ári samverunnar! Hlúum að fjölskyldunni, hlæjum mikið, elskum heitt og umfram allt búum til minningar SAMAN!

Um Samanhópinn

Forsaga hópsins er sú að um áramótin 1999-2000 tók hópur fólks sig saman og stóð að hvatningarátaki undir yfirskriftinni ,,Fjölskyldan saman á tímamótum”. Átakið fólst m.a í því að póstkortum var dreift inn á heimili landsmanna, auglýsingar birtust í ýmsum fjölmiðlum og greinar voru ritaðar í dagblöð. Átakið var endurtekið ári síðar og ákvað hópurinn að vinna áfram saman að forvörnum í tengslum við atburði þar sem líklegt var að aukning yrði á neyslu vímuefna meðal ungmenna.

Hópurinn setti sér eftirfarandi markmið:

  • Að auka samstarf fólks sem vinnur að forvörnum. Þeir sem standa að hópnum eiga það sammerkt að vinna á einhvern hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferð og ráðgjöf.
  • Hópurinn vinnur að því að vekja athygli á þeirri ógn sem börnum og unglingum stafar af vegna útbreiðslu áfengis og vímuefna í samfélaginu, beina athygli foreldra að ábyrgð þeirra á uppeldi barna sinna og hvetja til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar. Skilaboðum hefur verið komið á framfæri í fjölmiðlum, með umræðum og auglýsingum. Hópurinn leggur áherslu á að starf hans skili sér til allrar landsbyggðarinnar.
  • Starf hópsins miðar að því að styrkja og styðja foreldra í sínu uppeldishlutverki. Skilaboðin eru um mikilvægi ábyrgðarinnar á umönnun og uppeldi barna sinna og þar er lögð áhersla á að foreldrar verji sem mestum tíma með börnum sínum. Því er beint til foreldra, með skýrum hætti, að þeir kaupi ekki eða veiti börnum áfengi – og bent á að þar setja landslög mörkin við 20 ára aldur – að virtar séu reglur um útivistartíma og bent á þær hættur sem eftirlitslaus partý, útihátíðir og neysla áfengis og annarra vímuefna setur börn þeirra í.

Árangurinn starfs sem þessa kemur að sjálfsögðu ekki í ljós samstundis. Þolinmæði skiptir máli þegar kemur að forvarnastarfi. Forvarnastarf er í raun fjárfesting til framtíðar. Það sem SAMAN–hópurinn leggur fyrst og fremst áherslu á eru skilaboð til uppalenda, það eru þeir, þegar allt kemur til alls, sem skipta mestu máli í forvarnastarfi. Hópurinn telur sig vera að setja vopnin í þeirra hendur með því að hvetja þá og upplýsa. Mikilvægast af öllu er að foreldrar gefi sér tíma með börnunum sínum, þekki þau mjög vel og séu vinir þeirra. Í forvörnum geta foreldrar nefnilega verið bestir. Snemma árs 2003 var Björgvin Ólafsson, grafískur hönnuður, fenginn til að hanna merki fyrir hópinn. Í samstarfi hópsins og í samstarfi við aðra sem að forvörnum starfa hefur hjartað gjarnan komið við sögu. Ákveðið var að hjartað skyldi áfram vera sterkur þáttur í ímynd hópsins, enda væntumþykja rauður þráður í starfinu. Tákn SAMAN þykir því endurspegla vel það starf sem hópurinn stendur fyrir.

Jólaátak SAMAN-hópsins

Jólaátaki SAMAN-hópsins er ætlað að hvetja foreldra til að njóta samvistar með börnum sínum og unglingum og fylgja þeim á aðventunni. Átakið er í formi jóladagatals sem minnir okkur á að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Alla jafna er mikið að gera í desember og er fólk mikið á ferðinni. Þá er sérstaklega mikilvægt að muna að samvera með fjölskyldunni er mikilvæg. Allt árið um kring.

Ábendingagátt