Við erum þorpið – Fáðu fréttir af stöðu hafnfirskra unglinga
Fimm erindi öll pökkuð upplýsingum verða flutt á klukkustund á hraðstefnumóti við ykkur foreldra í Hafnarborg þriðjudaginn 9. júní. Fimm sérfræðingar Hafnarfjarðarbæjar í forvörnum og málefnum barna halda erindin. Við hvetjum ykkur öll til að mæta.
Komdu á hraðkynningu – það er þess virði
- Þórunn Þórarinsdóttir, umsjónarmaður Ungmennaráðs Hafnarfjarðar og verkefnastjóri Barnvæns Sveitarfélags.
- Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, kennslufulltrúi mannréttinda.
- Jóna Rán Pétursdóttir, forvarnafulltrúi bæjarins.
- Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi.
- Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar.
Fjölmargra breytingar og viðburðir hafa verið haldnir síðustu misseri hér í Hafnarfirði. Unglingarnir okkar hafa tekið þátt í ungmennaþingum, haldið hefur verið fjölmenningarþing auk þess sem staða ungmennanna okkar hefur verið könnuð. Sérfræðingarnir hafa kafað í niðurstöður og tekið saman fyrir okkur. Þeir segja okkur frá því hver staðan er og gefa góð ráð – allt á einni klukkustund í Hafnarborg. Það má því segja að þetta sé hraðstefnumót við ykkur foreldra hér í Hafarfirði, þar sem hver mínúta er hlaðin upplýsingum sem nýtast ykkur inn í sumarið og fram á veginn.
Velkomin öll.
Dagskrá:
Hvenær = 9. júní milli kl. 17:30-18:30
Saman erum við þorpið – vertu með!
Haustið 2024 fór Hafnarfjarðarbær og heilsubærinn Hafnarfjörður af stað með fundaröðina: Við erum þorpið – um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi.
Á árinu 2025 héldum við leikum áfram og funduðum undir heitinu: Við erum þorpið – horfumst í augu. Já, samstarf heimila, skóla og samfélags er svo mikilvægt. Við höldum því áfram og fundum undir merkjum Við erum þorpið enda Hafnarfjörður nú barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.
![]()