Viðtal við Valdimar – Hittu bæjarstjórann á Thorsplani  

Fréttir

 „Mig langar að hitta fólk, heyra hvað brennur á því, hvaða hugmyndir Hafnfirðingar hafa eða bara spjalla,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri sem færir skrifstofu sína þrisvar út í annað glerhýsanna á Thorsplani. Sjáðu hvenær.

Heitt á könnunni og gott spjall

„Mig langar að hitta fólk, heyra hvað brennur á því, hvaða hugmyndir Hafnfirðingar hafa eða bara spjalla,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri sem færir skrifstofu sína þrisvar út í annað glerhýsanna á Thorsplani og býður fólki í gott spjall, samtal. Hvenær? 

  • Föstudaginn 16. maí klukkan 11:30 – 13:30. 
  • Föstudaginn 23. maí kl. 12:00 – 14:00. 
  • Fimmtudaginn 05. júní kl. 09:00 – 11:00. 

Ekki þarf að panta tíma heldur einungis mæta. Ekki þarf að uppfylla aldur eða ræða ákveðið málefni. Öll eru velkomin með það sem er þeim efst í huga. 

Valdimar hefur verið bæjarstjóri frá upphafi árs. Hann býður þegar íbúum viðtalstíma á þriðjudagsmorgnum. Þá þarf að panta tíma í síma 585 5506. En nú er tækifæri að hitta hann auglitis til auglitis á Thorsplani. 

Valdimar hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði frá sveitarstjórnarkosningunum 2022. Hann var varabæjarfulltrúi kjörtímabilið 2018-2022. Hann flutti til Hafnarfjarðar árið 2008 og hóf störf sem aðstoðarskólastjóri Öldutúnsskóla og varð skólastjóri árið 2013. Frá áramótum hefur hann ekki aðeins haft opnu viðtalstímana heldur heimsótt allar starfsstöðvar bæjarins. 

„Ég verð með heitt á könnunni og vonast til að ná góðu spjalli á Thorsplani,“ segir hann. 

Ábendingagátt