Viðurkenning fræðsluráðs til Hraunvallaskóla

Fréttir

Hraunvallaskóli hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2015.

Hraunvallaskóli hlýtur viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2015 fyrir nýbreytni og þróunarstarf á unglingastigi skólans. Á síðustu árum hefur skólastarf á unglingastigi skólans verið endurskipulagt og þróað frekar út frá kennslufræði einstaklingsmiðunar með hliðsjón af kennsluaðstæðum (skólahúsnæðinu).

Viðurkenning fræðsluráðs hefur það að markmiði að vekja athygli á mikilvægi skólastarfs í samfélaginu og veita einstaka verkefnum viðurkenningu sem miða að skólaþróun, samvinnu og frumkvæði. Viðurkenningin er veitt árlega.

Ábendingagátt