Vorboðinn ljúfi – götusópun er hafin

Fréttir

Vorsópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði er hafin. Er það óvenju snemmt í ár og stýrist af veðurblíðu síðustu daga. Áhersla er lögð á sópun á aðalleiðum til að byrja með og í dag voru Reykjavíkurvegur og Hjallabraut meðal annars sópaðar. Framvinda vorsópunar stýrist áfram af veðri næstu daga og vikur.

Vorsópun hófst í dag

Vorsópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði er hafin. Er það óvenju snemmt í ár og stýrist af veðurblíðu síðustu daga. Viðmið um vorsópun er 1. apríl – 1. júní ár hvert þar sem bænum er skipt upp í 15 hverfi og hvert hverfi sópað á einum degi. Áhersla er lögð á sópun á aðalleiðum til að byrja með og í dag voru Reykjavíkurvegur og Hjallabraut meðal annars sópaðar. Framvinda vorsópunar stýrist áfram af veðri næstu daga og vikur.

Hverfaskipting sópunar

Starfað er eftir ákveðinni verkáætlun sem felur í sér sópun á öllum hverfum á tímabilinu 2. apríl til 2. maí. Sett verða skilti við hvert hverfi deginum áður en sópað er ásamt því að senda smáskilaboð á íbúa búsetta í hverfinu um að þeirra hverfi verður sópað. Það eru vinsamleg tilmæli til íbúa að taka virkan þátt þannig að árangurinn verði sem bestur. Nauðsynlegt er að hafa götur auðar af bílum þann dag sem sópað er þannig að mögulegt sé að sópa kantanna á milli. Íbúar og starfsfólk fyrirtækja geta samhliða nýtt tækifærið og sópað í kring hjá sér. Þannig verður heildin miklu fallegri ásýndar. Um leið og hverfasópun er lokið verður farið í háþrýstiþvott, sópun á aðalgötum og helstu safngötum ásamt miðeyjum. Verkáætlun er sett fram með fyrirvara um breytingar sem einna helst geta orðið vegna veðurs (frost) og seinkun hjá verktaka sem sér um sópunina.

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar fagnar ábendingum um það sem betur má fara. Besta og skilvirkasta leiðin er ábendingagátt sveitarfélagsins þar sem skráning fer strax í formlegt ferli og afgreiðslu.

Sendu okkur ábendingu

Ábendingagátt